útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Jú, hann nefndi það sjálfur, það er talað um í c-lið lengur en eitt ár, ef viðkomandi hefur verið dæmdur til refsingar í lengur en eitt ár. Þessi breytingartillaga okkar skilyrðir ekkert um það. Ef þú hefur einfaldlega verið dæmdur og það hefur verið stórkostlegt brot eða eitthvað — ég veit það t.d. að það hefur verið talað um að oft hafi verið miðað við þriggja mánaða fangelsisdóm eða annað slíkt en það er ekki einu sinni í boði núna. Sex mánaða fangelsi fyrir nauðgun eða níu mánuðir fyrir nauðgun, það er þá ekki í boði samkvæmt gildandi lögum að brottvísa einstaklingi í slíkum tilvikum. Við erum einfaldlega að girða fyrir að það fari nokkuð á milli mála, við viljum bara einfaldlega að í stað þess að sitja í gæsluvarðhaldi eða einhvers staðar, já, þá viljum við hafa það þannig að við getum brottvísað fólki á mun víðari hátt heldur en við erum að gera núna.