154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:02]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég ætla að taka aðeins upp þráðinn þar sem hv. þm. Lenya Rún Taha Karim sleppti. Í þessu frumvarpi, sem mér heyrist hv. þm. Inga Sæland styðja, er m.a. verið að leggja til að umsækjandi sem hefur fengið leyfi til atvinnu á meðan á málsmeðferðinni stendur, sem er ekkert rosalega algengt vegna þess að það eru talsverðar hindranir fyrir því, missi það atvinnuleyfi við ákvörðun Útlendingastofnunar en ekki við lokaniðurstöðu eins og er í dag. Í mörgum tilvikum er málið meira að segja kært sjálfkrafa. Þetta þýðir það að einstaklingum, sem eru komnir út á vinnumarkað og í rauninni þarf kerfið ekki að hafa áhyggjur af þeim á meðan á málsmeðferð stendur, er kippt aftur inn í þjónustuna. Til hvers? Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji þessa breytingu vera til bóta sem lögð er þarna til?