útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef það er svoleiðis að einstaklingi, sem er kominn í vinnu og er bara að bíða eftir úrlausn sinna mála, er bara kippt inn á kerfið aftur þá finnst mér það nú vera stórkostlega furðuleg stjórnsýsla. Þar til að viðkomandi hefur fengið brottvísun þá er náttúrlega algjörlega sjálfsagt að hann sé á sínu framfæri ef hann hefur til þess tækifæri og getu, algerlega sjálfsagt. Þannig að ég tek bara heils hugar undir með hv. þingmanni. Ég held að hún sé einmitt á sama stað og hv. þm. Lenya Rún Taha Karim var hérna á undan, ég er að skilja betur núna kannski hvernig er verið að teikna þetta upp. Eins og ég skil hv. þingmann þá verður að vera komin endanleg niðurstaða áður en farið er að svipta einstakling sem er í vinnu tækifæri á því að vinna og skella honum aftur á framfærslu samfélagsins. Auðvitað er það algerlega kolröng nálgun og stórfurðuleg í orðsins fyllstu merkingu. Ég tek heils hugar undir það.