útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Já, þetta er nú bara eitt dæmi úr þessu frumvarpi sem ég ætla að leyfa mér aftur í þessari pontu að kalla heimskulegt. Við hv. þm. Inga Sæland erum ekki sammála um allt þegar kemur að þessum málaflokki. En við erum þó sammála um margt og ég held að við séum hjartanlega sammála um að það að vera að eyða tugum milljarða í kerfi sem gengur út á að afgreiða umsóknir um alþjóðlega vernd er fullkomlega óásættanlegt. Það er algerlega með öllu óverjandi. Hins vegar er verið að gera breytingar með þessu frumvarpi sem munu þyngja málsmeðferðina hjá Útlendingastofnun, auka álagið á stofnunina og auka kostnað eins og t.d. þetta, að kippa fólkinu aftur í þjónustu sem er komið með vinnu. Til hvers? Þarna þarf stofnunin að fara í einhverjar bréfasendingar og kippa þessu leyfi úr gildi og viðkomandi kemur aftur jafnvel með fjölskyldunni sinni inn í þjónustuna. Svo er verið að stytta gildistíma dvalarleyfa í engum skiljanlegum tilgangi, engum sjáanlegum tilgangi öðrum en þeim að reyna að fæla fólk í burtu (Forseti hringir.) sem hefur ekki hugmynd um það hvernig gildistími dvalarleyfa er á milli ríkja. Það eykur auðvitað álagið á Útlendingastofnun vegna þess að þá þarf (Forseti hringir.) stofnunin að afgreiða umsókn um endurnýjun tvöfalt oftar. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvers vegna hún styður þetta frumvarp, (Forseti hringir.) deilandi þeirri skoðun með mér að við séum að eyða of miklum peningum í þetta og þetta taki of langan tíma.