útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Mér hefur þótt vera alls ekki nógu öflugur mannskapur hjá Útlendingastofnun til að geta látið málaflokkinn ganga fyrir sig á skilvirkari hátt og að einstaklingar séu fyrr búnir að fá úrlausn á því hvort þeir eru að koma eða fara, hvort við erum að fara að taka á móti þeim eða ekki. En í raun og veru held ég líka að það sé ekki algilt þegar kemur að því að einstaklingi sem hefur náttúrlega verið brottvísað af Útlendingastofnun, það eru ekkert allir sem lenda í því að vera í einhverjum biðsal þar og fara inn á félagskerfið aftur vegna þess að það eru ekkert allir sem eru komnir fyrir kærunefndina. Þannig að það eru ekki allir að bíða, sumum er bara brottvísað og eru ekki að kæra heldur bara fara. (ArnG: Sumir kæra.) Eru það bara allir sem geta kært eða er það bara sjálfvirkt? (ArnG: Það er bara fyrst núna í fyrra …) Já, en núna held ég að það sé að verða breyting og ég styð þessa breytingu. Mér finnst a.m.k. verið að koma til móts við eitthvað, of lítið að vísu. (Forseti hringir.) Ég hugsa að hv. þingmaður hefði ekkert verið rosalega hamingjusöm með útlendingafrumvarpið sem ég hefði sett fram, það hefði verið svolítið öflugra.