154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:07]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir hennar ræðu. Mig langar aðeins að minnast á það sem hv. þingmaður nefndi í gær, en þá ræddi hún um einmanaleikann. Í samhengi við þetta frumvarp þá er ég að velta fyrir mér: Telur hv. þingmaður að við gætum verið að auka á einmanaleika í landinu með því að takmarka fjölskyldusameiningar, að fólk geti ekki sameinast börnum sínum og mökum? Ég tók það alla vega úr ræðu hv. þingmanns að einmanaleiki væri að verða mikið mein í landinu og að margt fólk, eldra fólk og aðrir, væri mjög einmana og að það væri eitthvað sem við þyrftum að bregðast við; hvort hún telji að það gæti mögulega aukið á einmanaleika fólks sem getur ekki sameinast fjölskyldu sinni í alla vega tvö ár.