útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvort það eykur á einmanaleikann — ef ég á að segja alveg eins og er, hv. þingmaður, þá kemur það mér mjög á óvart hvernig nokkur faðir getur yfirgefið konu og börn í stríðshrjáðu landi og búið hér í fimm ár og kallað svo eftir fjölskyldusameiningu. Ég held bara að okkar menning sé einfaldlega þannig; ég veit ekki um einn einasta karlmann hér sem myndi yfirgefa fjölskyldu sína til margra ára. Hvort það eykur á einmanaleika — mér finnst það algjört lágmark að við gerum þær kröfur til einstaklinga, sem ætla að búa hér með fjölskyldum sínum, að þeir sýni fram á að þeir geti alið önn fyrir fjölskyldunni í fyrsta lagi. Og við erum ekki með þetta sem tveggja ára skilyrði í þessu frumvarpi heldur eitt ár ef viðkomandi getur sýnt fram á að hann geti alið önn fyrir fjölskyldu sinni og sé a.m.k. með vinnu og tali íslensku að einhverju gagni.