154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:09]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir svar við andsvari mínu. Já, ég skil að það sé undarlegt að fjölskyldufeður, eða stundum eldri bræður eða mæður, fari frá fjölskyldum sínum. Neyðin er þá væntanlega það mikil að fólk á engra annarra kosta völ. Ég held að við séum bara það heppin að við höfum ekki þurft að upplifa þetta, flest okkar sem erum hér inni. Ég held að það sé bara þannig að við getum aldrei sett okkur í þessi spor. Við getum reynt en við getum, held ég, ekki skilið þetta. En það er stundum þannig að þessu er snúið við og fólk sækir um fjölskyldusameiningu áður en það kemur og þá getur það fengið fjölskylduna sína með sér. Myndi hv. þingmaður frekar vilja hafa það þannig?