154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:11]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Og já, mér þætti það eðlilegra að fjölskyldufaðirinn kæmi bara með fjölskylduna ef ástandið væri svona bágt heima hjá honum og þau væru í hættu; að hann skildi ekki fjölskylduna eftir algjörlega óvarða. Við erum eiginlega þannig gerð, og ég held, hvort sem það væri ég sem móðir eða hv. þingmaður, að þú myndir aldrei skilja börnin þín eftir í hættu til að reyna að forða sjálfri þér. Það liggur algerlega alfarið á borðinu. Já, það væri náttúrlega eðlilegra ef þess væri nokkur kostur. Ef við gæfum okkur að þetta væri fjölskyldufaðir að þá myndi hann taka utan um sína fjölskyldu og þau kæmu bara öll saman og sæktu um alþjóðlega vernd. Það þætti mér bæði fjölskylduvænna, félagslega betra og það væri fallegri ásýnd en sú sem hefur teiknast upp að undanförnu, a.m.k. eins og ég lít á það.