154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Forseti. Ég ætla að reyna að forðast að endurtaka mig í þessari umræðu enda að mjög mörgum punktum að huga. Það sem mig langaði til að byrja á að nefna í þessari ræðu minni er tengt því sem haldið er fram í greinargerð með frumvarpinu og í máli þeirra sem styðja þetta mál, þ.e. að með því sé verið að samræma við löggjöf annarra ríkja. Þetta er bara vitleysa enda löggjöfin mjög ólík á milli ríkja, t.d. mjög ólík á milli Norðurlandanna innbyrðis.

Eitt dæmi langar mig til að nefna varðandi fjölskyldusameiningar. Í sumum ríkjum er það þannig að einstaklingur sem hefur fengið vernd þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að geta sótt um fjölskyldusameiningu. Hann þarf t.d. að vera búinn að læra tungumálið, vera með vinnu og geta framfleytt fjölskyldunni eða eitthvað slíkt. Í öðrum ríkjum eru tímafrestir, eins og verið er að leggja til hér, þannig að þú þurfir að hafa verið hérna í X tíma áður en þú getur sótt um fjölskyldusameiningu; þetta er reyndar í fáum ríkjum að því er ég veit. Í sumum ríkjum er þessu öfugt farið. Þá er það þannig að þú verður að sækja um fjölskyldusameiningu innan ákveðins tíma. Þú hefur bara tvö ár, eða hvað það er, til að óska eftir því að fá fjölskylduna þína til þín. Hvernig stendur á þessu? Hvernig stendur á því að löggjöfin er svona ólík á milli Evrópuríkjanna þrátt fyrir að gerðar hafi verið einhverjar tilraunir með Evrópureglugerðum og tilskipunum til þess að samræma þetta með einhverjum hætti? Jú, það er vegna þess að viðhorfin í ríkjum eru ólík og stundum eru stjórnvöld bara svolítið að gera það sem ríkisstjórnin er að gera núna, bara eitthvað.

Mig langar því að gera þetta að umtalsefni mínu núna: Ég hjó eftir því í umræðunni hér áðan, án þess að nefna nein nöfn, að ég held að sumir þingmenn hafi tekið afstöðu til frumvarpsins án þess að vita um hvað það snýst. Þar er umræðunni kannski svolítið um að kenna þar sem hún er út á við, og jafnvel innan þings, svolítið á þann veg að nú sé ríkisstjórnin að taka þetta föstum tökum og herða landamærin og einhvern veginn að loka þeim, og svo koma þessir Píratar og vilja opna landamærin. Ég held að þetta sé svona utan frá grófa hugmyndin sem fólk hefur. Í þessu frumvarpi lokum við landamærunum en Píratarnir ætla að opna landamærin. Þetta á sér enga stoð í raunveruleikanum, enda hefur þetta frumvarp ekkert með landamærin að gera. Það sem er verið að reyna að gera með þessu frumvarpi er að það er verið að reyna að skapa einhvers konar fælingarmátt með því að stytta gildistíma dvalarleyfa, með því að minnka rétt til fjölskyldusameiningar. Það er bara ekkert sem bendir til þess að það virki til að fæla fólk frá því að sækja um vernd vegna þess að fólk sem sækir um vernd er í lífshættu og það er ekkert rosalega upptekið af því nákvæmlega hvernig löggjöfinni er hagað hér og þar. Og varðandi það hvað Píratar vilja gera — ég held að það hafi ekki einn einasti Pírati staðið upp í þessari pontu, hvorki í þessari umræðu né um það ömurlega mál sem við samþykktum hér fyrir ári, og minnst á að það eigi að opna einhver landamæri. Enda erum við ekkert að ræða landamærin. Landamærunum okkar er í raun stjórnað á forsendum Schengen-samstarfsins. Þau eru mjög lokuð. Það er erfitt að komast til Íslands, það er mjög erfitt að komast til Íslands. Þær reglur er bara verið að herða á öðrum vettvangi en það á ekki heima hér í þessum þingsal. Það er ekkert verið að tala um það, við erum ekkert að ræða það hérna. Það sem við erum að ræða hér er hvernig við komum fram við fólk sem er komið hingað. Ríkisstjórnin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn og reyndar nokkrir aðrir flokkar hérna, vill koma illa fram við fólk í þeirri von að það hætti við að koma. En það er bara ekki þannig sem það virkar og það er ekki þannig sem það hefur virkað í þeim löndum sem hafa reynt þetta. Það sem virkar sannarlega er þegar það breiðist út að mikil útlendingaandúð sé í samfélaginu og að fólk eigi undir högg að sækja. Viljum við vera það land? Viljum við vera sú þjóð? Ég vona ekki, ég vil það ekki. Og þegar við erum að tala um aðdráttarafl, hvers vegna fólk kemur til Íslands — jú, vegna þess að það er í neyð og það er reyndar mjög algengt að fólki finnist ekkert endilega sérstaklega aðlaðandi veðráttan hérna og annað, en það hefur bara ekki um aðra kosti að velja.

Nú er ég aftur fallin á tíma og var bara búin með einn punkt af þremur sem ég ætlaði að koma með í þessari ræðu. Ég óska eftir því, forseti, að fá að fara aftur á mælendaskrá.