útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður kom inn á það að umræðan sé á þeim nótum að hér sé verið að færa regluverkið til þess sem þekkist í nágrannalöndum okkar og hv. þingmaður benti á það sem er augljóslega rétt að að sumu leyti er ekki bara blæbrigðamunur á regluverkinu þar heldur eðlismunur í sumum þáttum. Við í þingflokki Miðflokksins höfum talað á þeim nótum að vilja færa regluverkið hér sem mest til þess, og í raun alveg til þess, sem við sjáum í Danmörku, mjög afmarkað. Það er sú nálgun sem við viljum sjá hér innleidda og aðlaga það sem passar ekki við það í dag af kerfinu, ef svo má segja, því sem sá lagarammi kallar á.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að þingmaðurinn hefur sett sig ágætlega inn í þessi mál, hvað af regluumgjörð Norðurlandaþjóðanna þykir þingmanninum — ef þingmaðurinn væri settur í þá stöðu að þurfa að velja eitt þeirra kerfa og yfirfæra það á Ísland, hvert þeirra kerfa hugnaðist þingmanninum best?