útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Nú er ég nokkuð fróð um kerfið á Íslandi en ekki sérfróð um kerfið á öllum Norðurlöndunum. Þegar ég sat í allsherjar- og menntamálanefnd í fyrra fórum við í vettvangsferð og könnuðum hvernig hlutirnir eru í Noregi og Danmörku. Það er mjög ólíkt, það er mjög ólík nálgun í þessum tveimur ríkjum. Mér hugnaðist betur nálgunin í Noregi og það hefur líka gefist betur, það hefur reynst betur. Við sjáum það alveg að sú stefna sem gengur út á það að láta fólk upplifa að það sé ekki velkomið er mjög hættuleg. Hún er hættuleg fyrir samfélagið. Hún jaðarsetur fólk og eykur líkurnar á að það fóti sig ekki í samfélaginu sem leiðir fólk út í afbrot og andfélagslega hegðun. Þegar það upplifir sig ekki hluta af samfélaginu þá minnkar áhuginn á því að fylgja reglum samfélagsins. Ef fólk upplifir sig hins vegar sem hluta af samfélaginu þá sýna allar rannsóknir að fólk er til í að leggja ýmislegt á sig til að vinna að hagsmunum samfélagsins.
Í fyrsta lagi eru tillögurnar sem er verið að gera með þessu frumvarpi og þessi stefna sem er tekin í Danmörku — Danmörk er sannarlega fræg í Evrópu fyrir að vera í raun með einna fjandsamlegustu stefnuna. Það hefur afleiðingar. Það er gríðarlega mikil stéttskipting. Það er mikil jaðarsetning og útskúfun. Í Danmörku hafa myndast einangraðir þjóðfélagshópar. Við viljum þetta ekki, ég vil þetta ekki. Í Noregi eru mjög árangursrík kerfi sem ganga út á það t.d. að dreifa flóttafólki um landið. Samningar eru gerðir við sveitarfélög. Það er mikil áhersla lögð á inngildingu, ekki aðlögun. Inngilding gengur út á að það sé gagnkvæm vinna sem á sér stað. Það er að gefast mjög vel, enda heyrum við miklu sjaldnar einhverjar hryllingssögur frá Noregi. Það gengur bara miklu betur. Ég myndi miklu frekar vilja sjá að við værum að horfa til þeirra lausna sem ganga vel en þeirra sem virðast ganga illa og hafa mjög slæmar og alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir samfélagið, ef við setjum mannúðina bara til hliðar.