154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Kann hv. þingmaður einhverjar skýringar á því, ef við horfum til þess fjölda umsókna um alþjóðlega vernd sem hafa blasað við okkur undanfarin ár — nú metur hv. þingmaður kerfið eins og það er í Noregi vinsamlegra en það sem við horfum á í Danmörku en á sama tíma horfum við á margfaldan fjölda umsókna hér á Íslandi samanborið við það sem gerist í Noregi. Þekkir hv. þingmaður skýringu á því? Við þekkjum að Venesúela hefur ákveðin áhrif sem skekkja myndina þegar horft er á heildartöluna. En þrátt fyrir að við tökum Vensúela alveg til hliðar er staðan sú sama þótt hlutfallsmunurinn sé minni, hann er samt umtalsverður. Er þá eitthvað í kerfinu eins og það er í dag á Íslandi sem er — ég veit ekki hvaða orð er best að nota um það. En er faðmurinn opnari hér á Íslandi en í Noregi sem þó, að mér heyrist að mati hv. þingmanns, er að nálgast þetta á nótum sem hv. þingmanni hugnast?