154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:22]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir virkilega góðar spurningar og ábendingar. Já, ég hef mínar kenningar um það hvers vegna þessar tölur eru með þessum hætti. Ein er sú að það er bara ekki talið eins í öllum ríkjum. Hin er sú að við eigum heimsmet í meira og minna öllu. Þú þarft ekki annað en 20 hræður hér á Íslandi til þess að umbylta allri tölfræði. Það gefur augaleið að ef það verður einhver aukning þá er viðbúið að hún verði hlutfallslega hærri miðað við höfðatölu hér, eins og er með allt, gosdrykkju, sjónvarpsgláp; ég held við eigum heimsmet í öllu, það er sama hvar stigið er niður (Gripið fram í: Í ríkisútgjöldum.) — í ríkisútgjöldum, ég þekki það ekki. En hv. þingmaður fullyrðir það og ber ábyrgð á þeirri fullyrðingu.

Ég get bara, rétt eins og ríkisstjórnin, giskað á það hvers vegna fólk leitar til Íslands frekar en annað. Í mínu starfi hef ég oft spurt fólk: Hvers vegna kemurðu til Íslands? Áður fyrr var þetta algengt svar: Ég ætlaði ekki til Íslands, ég ætlaði til Kanada en var stoppuð á ytri landamærum Schengen sem eru lokuð í báðar áttir. En í dag þá stefnir fólk sannarlega til Íslands. Þetta eru auðvitað fyrst og fremst Venesúela og Úkraína. Ef við tökum þá hópa út úr þessum tölum hefur ekki orðið nein holskefluaukning hérna. Það er bara þannig. Venesúela og Úkraína, það er ólíkt talið á milli ríkja. Sum ríki flokka Úkraínumenn ekki sem flóttamenn af því að það er þessi fjöldamóttaka og annað, þá er það hreinlega ekki inni í tölunum. Það eru alls konar svona hlutir sem ekki er gefinn gaumur að í þessum samanburði.

Ef við eigum hins vegar að fara út í efnisatriði málsins, hvers vegna fólk kemur til Íslands, þá er það rétt að við höfum í gegnum tíðina, þó að það hafi farið minnkandi á undanförnum árum, þó að 2. mgr. 36. gr. hafi verið í gildi allan tímann, fengið hátt hlutfall af einstaklingum sem eru búnir að fá vernd í öðrum ríkjum. Það er einfaldlega vegna landfræðilegrar legu landsins. Þú kemst ekki til Íslands nema vera stoppaður einhvers staðar á leiðinni. Í mörgum jaðarríkjunum þar sem búið er að kippa Dyflinnarreglugerðinni úr sambandi, eins og í Grikkland — við sendum ekki til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, bara ef fólk hefur fengið vernd þar í landi sem ákveðin þjóðerni fá nánast sjálfkrafa við komu, (Forseti hringir.) þannig að það er sama málið. Þau halda áfram vegna þess að það er ekkert líf þar. Þetta er fyrst og fremst fólk sem er að koma frá Grikklandi. (Forseti hringir.) Það er ástæðan; landfræðileg lega, smæð þjóðarinnar og bara hvað þessar tölur eru í raun lítið marktækar þegar upp er staðið.