útlendingar.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að útlendingafrumvarpið sem hefur verið til meðferðar um allnokkra hríð — þetta er svona annar hringur af því sem var klárað í fyrra í fimmtu tilraun, eða viðbót ofan á það ef svo má segja — sé að komast til lúkningar hér í þinginu og þó fyrr hefði verið. Málið sem hér um ræðir var að mínu mati betra þegar það var lagt fram og kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á sínum tíma. Það urðu töluverðar breytingar á því þar sem nokkur atriði féllu út, sem að mínu mati voru til bóta, frá framlagningu í samráðsgátt þangað til mælt var fyrir málinu hér í þinginu.
Í þeim efnum er rétt að halda því til haga og rifja upp að þingflokkur Miðflokksins lagði fram breytingartillögur við 2. umræðu sem gengu út á það að setja aftur inn í frumvarpið þessi atriði sem duttu út frá kynningu málsins í samráðsgátt þar til það var lagt fram hér í þinginu. Það eru í rauninni allt saman atriði sem hefðu hjálpað til við að ná stjórn á landamærunum, eins og við horfum á málið, en það sem kom á óvart var að þær breytingartillögur voru felldar með öllum greiddum atkvæðum stjórnarliða. Ég fór ekki í gegnum talningu stjórnarandstöðunnar, hvernig atkvæði lágu, en hver einasti stjórnarliði greiddi atkvæði gegn þessum breytingartillögum. Það var í rauninni úr takti við það sem ýmsir þingmenn höfðu látið í veðri vaka á fyrri stigum sem bendir til þess að þetta hafi verið einhvers konar samkomulag stjórnarflokkanna á milli sem birtist með þessum hætti og gerir frumvarpið, eins og það liggur hér fyrir til lokaafgreiðslu, veikara en annars hefði orðið. Enda blasir við að það er mat dómsmálaráðherra að frumvarpið sé ekki að ná þeim markmiðum fram sem þyrftu að eiga sér stað. Í umræðunni núna, og gott ef það liggur ekki bara fyrir í greinargerð þessa máls, þó að ég hafi hana ekki hérna með mér, er hæstv. dómsmálaráðherra búinn að tilkynna að frekari framlagning mála sé áætluð í haust. Með því lýsir ráðherrann því auðvitað yfir að málið er ekki fullnægjandi. En málið er til bóta og eins og ég hef sagt hér við allar umræður þessa máls, og ítrekað og skrifað í pistlum og hvaðeina, þá styður þingflokkur Miðflokksins þetta mál eins og það liggur fyrir af því að það er til bóta. Það skiptir svo miklu máli að gera það sem hægt er þegar það er hægt, sem er þá núna, til að ná betri stjórn á þessum málaflokki sem hefur í meginatriðum verið stjórnlaus um allt of langa hríð.
Hæstv. dómsmálaráðherra vakti athygli hér, í eldhúsdagsræðu sinni í gær, á athyglisverðri tölfræði. Ef ég man rétt þá upplýsti ráðherrann að í tíð Sjálfstæðisflokksins í dómsmálaráðuneytinu hefði umsóknum um alþjóðlega vernd fjölgað um 2.700%. Það gæti hafa verið 3.700%, tölurnar voru svo háar (Gripið fram í.) — voru það 3.700%, þakka þér fyrir, herra forseti. Það var 3.700% aukning á fjölda umsókna um alþjóðlega vernd á þeim tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið á þessum málaflokki. Ég get bara ekki annað en þakkað hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að draga þessar staðreyndir fram því að þetta er auðvitað ótrúleg þróun og óráðsían og útgjaldaaukningin í ríkisfjármálum eru einhvern veginn allt miklu lægri tölur sem betur fer en við sjáum í þessu. En auðvitað eru áhrifin af þessu gríðarlegur kostnaður sem hefur lagst á íslenskt samfélag og kerfið, ef svo má segja, á undanförnum árum. Í ár er beinn kostnaður ríkissjóðs áætlaður á þriðja tug milljarða og beini kostnaðurinn er bara brot af heildarkostnaðinum og afleiddum áhrifum þess sem hér er að gerast þannig að heildarkostnaðurinn er því miður margfaldur, held ég að sé óhætt að áætla þó að það verði aldrei reiknað upp á tvo aukastafi hver hann er. Það að þetta mál sé komið hingað til 3. umræðu er því gott að mínu mati en að sama skapi held ég að það sé mikilvægt að hæstv. dómsmálaráðherra haldi þeim takti sem tilkynntur hefur verið hvað það varðar að frekari framlagning þingmála í þessum efnum sé fyrirhuguð strax í haust. Ég bara undirstrika: Það eru skilaboð í því hjá hæstv. dómsmálaráðherra að tilkynna strax að frekari frumvarpa sé þörf. Skilaboðin eru þau að þetta mál, eins og það liggur fyrir hér, er ekki fullnægjandi þó að það sé til bóta, mikilla bóta. Og af því að hæstv. dómsmálaráðherra er kominn í salinn vil ég ítreka hér enn einu sinni að þingflokkur Miðflokksins styður þetta mál heils hugar þó að hann sé svekktur yfir því að allar breytingartillögur flokksins hafi verið felldar hér við 2. umræðu málsins.
Ef við horfum aðeins á stóru myndina er fjöldi umsókna hér á landi, ef við berum okkur saman við nágrannalönd okkar, Norðurlöndin, búinn að vera margfaldur, tuttugufaldur á löngum köflum, hlutfallslega samanborið við Danmörku og jafnvel á við Svíþjóð sem allir halda að sé með eins opnar dyr og hægt er að hafa þær. Ég bar þetta saman fyrir nokkru við stöðuna í Þýskalandi þegar Angela Merkel innleiddi þar Open Door stefnuna sína, sem sagt „opin hurð fyrir þá sem hingað vilja koma“ í lélegri þýðingu. Það var það sama, margfaldur straumur hingað samanborið við Þýskaland þegar Þýskaland opnaði allar hurðir sem hægt var að opna. Þetta er auðvitað eitthvað sem lítið fámennt samfélag, eins og við eigum hér, þolir ekki til langs tíma. Við sjáum þau áhrif sem hafa komið fram á þessum stoðkerfum sem eru okkur svo mikilvæg, að þau eru gríðarlega mikil. Það er auðvitað fjölþætt. Það bæði snýr að hælisleitendum og svo auðvitað innflytjendum sem koma hér inn á grundvelli vinnumarkaðsreglnanna. En ég hef haldið því fram að þeir sem eru að koma hingað til að leita sér að betra lífi, sem ég hef alveg skilning á, eigi að leita sér að leið hingað á grundvelli vinnumarkaðsreglnanna. Þeir hópar eiga ekki að vera að koma hingað á grundvelli verndarkerfisins. Það er bara til annars ætlað og hugsað. Þess vegna held ég að við verðum svona í sem fæstum skrefum — þetta hefur gengið býsna hægt. Eins og ég segi, málið sem var samþykkt í fyrra, litla útlendingafrumvarpið, var samþykkt í fimmtu tilraun, eftir að það hafði verið útþynnt í hverri einustu framlagningu. Núna kemur þetta sem viðbót og þegar er búið að flagga frekari frumvörpum í haust, framlagningu þeirra, vegna þess augljóslega að þetta klárar ekki málið.
Ég hef verið þeirrar skoðunar að það þyrfti í raun að skrifa nýja heildarlöggjöf hvað þennan málaflokk varðar. Þar ættum við að horfa til þess með hvaða hætti frændur okkar í Danmörku eru að nálgast hlutina. Það er auðvitað ýmislegt í stofnanakerfinu hér heima sem þyrfti að breyta og aðlaga vegna þess, og þá göngum við til þess verks. En þar held ég að sé komið skapalón sem gæti orðið okkur til mikils gagns og það er komin reynsla á það. Eins og ég sagði hér í byrjun ræðu minnar hefur fjöldi þeirra sem hingað koma, eða sækja um alþjóðlega vernd, á löngum köflum verið tuttugufaldur á við þær tölur sem við sjáum í Danmörku og það er taktur sem við verðum að komast út úr.
Mig langar að nefna stuttlega að hér liggur fyrir breytingartillaga við 3. umræðu frá Flokki fólksins. Flutningsmenn tillögunnar eru allir þingmenn Flokks fólksins. Ég vil flagga því hér að þingflokkur Miðflokksins mun styðja við þá tillögu. Hún er til bóta og snýr að því, eins og hér segir, að útlendingur nýtur ekki verndar skv. 1. mgr. ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkis eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt brot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Ég held að þetta sé svo sem í takti við það sem hæstv. forsætisráðherra hefur m.a. sagt undanfarið varðandi það að þeir sem brjóta af sér með alvarlegum hætti fyrirgeri rétti sínum til dvalar hér. Og ég held að þetta sé ágætistillaga í þeim efnum að flýta því ferli að sú nálgun verði viðhöfð.
Ég held að þetta sé að verða komið hjá mér, þeir meginpunktar sem ég vildi leggja áherslu á hér í lokin. Bara af því að hæstv. dómsmálaráðherra var ekki kominn í salinn þá ítreka ég þakkir mínar til ráðherrans frá því í gær fyrir að draga fram þessar ótrúlegu upplýsingar varðandi fjölgun umsókna á þeim tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með þennan málaflokk, að það sé 3.700% aukning á umsóknum um alþjóðlega vernd hér á landi á því tímabili. Þetta eru hreinlega ótrúlegar tölur og það hlýtur að vera hvatning fyrir hæstv. ráðherra, sem ég veit að vill vel í þessum málaflokki, til að leggja hér fram þau frumvörp sem ráðherrann hefur þegar flaggað að verði lögð fram á næsta þingi.