útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og einnig vil ég þakka fyrir orð hans um að styðja við þetta mikilvæga frumvarp sem hefur verið í meðförum þingsins í vetur. Hv. þingmanni verður tíðrætt um það að hér hafi verið gerðar breytingar og að þær séu ekki nægar. Öll ríki Evrópu hafa sammælst um hælispakka ESB, þannig að það eru öll ríki að herða löggjöf sína í þessum málaflokki. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvaða afstöðu hann hefur til þeirra aðgerða annarra ríkja.