útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir andsvarið. Ég hef ekki kynnt mér þessar útfærslur Evrópusambandsins í þaula. Ég get alveg sagt heiðarlega að ég fæ alltaf svolítið í magann þegar ég heyri af nýjum pakka frá Brussel. En ef þetta verður til þess fallið að auðvelda okkur hér á Íslandi, á þessari eyju sem við búum á, að hafa stjórn á landamærum okkar þá held ég að það verði til bóta. En reynslan er sú að það er oft eitthvað sem fylgir með í kaupbæti þegar pakkarnir mæta frá Brussel. Ég verð því að áskilja mér rétt til að kafa betur ofan í það í ljósi þess að hér er auðvitað bara þetta mál til umfjöllunar. En ég hef lúmskan grun um að þegar við mætum hér í haust, ég og hæstv. dómsmálaráðherra, verði ég orðinn býsna vel lesinn í þessari sendingu frá Brussel.