154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:39]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að nefna það við hv. þingmann, og þakka honum fyrir svar hans hér, að hælispakki ESB — þegar hv. þingmaður talar um að verið sé að gera of lítið í frumvörpunum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram til breytinga í þessum málaflokki þá er mikil samsömun í hælispakka ESB við þær breytingar sem við erum að gera. Þær miða að því m.a. að ríkin í Schengen-samstarfinu hafi sambærilega löggjöf í málaflokknum og markmiðið er nákvæmlega það sama og markmiðið er með þessu frumvarpi, þ.e. að fækka umsækjendum, ná niður kostnaði en ekki síst að tryggja brottflutning þeirra sem hér fá ekki vernd af svæðinu. Mig langar því að fá að spyrja hv. þingmann aftur hvort hann sé þá ekki nokkuð ánægður með þær breytingar sem gerðar eru í frumvörpunum og telji að þær muni bera árangur til framtíðar litið.