154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Nú setur að mér ugg þegar það liggur fyrir að frumvarpið, sem hér liggur fyrir, hafi mögulega verið námundað niður til að mæta pakka frá Brussel. Eins og ég segi, aftur með þeim fyrirvara að ég þarf að kynna mér pakkann betur (Gripið fram í.) — jú, það var bara einfaldlega þannig að frá því að málið var kynnt í samráðsgátt þar til hæstv. ráðherra mælti fyrir því hér í þinginu voru tekin út ákveðin atriði sem Miðflokkurinn lagði til að yrðu sett aftur inn en það var fellt. Ég verð bara að gefa mér tækifæri til að skoða þetta betur. En það að við séum að aðlaga okkur með þessu frumvarpi regluverki Evrópusambandsins, ég hef smááhyggjur af því. En varðandi það að ég sem hér stend, og um leið Miðflokkurinn, segi að ekki sé gert nóg þá segir hæstv. ráðherra það í raun sjálf með því að segja: Það verða lögð fram frekari frumvörp í haust. Það væru ekki skilaboðin ef hæstv. ráðherra mæti það sem svo að þetta væri fullnægjandi.