útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Nú erum við hv. þingmaður ekki sammála um allt í þessum málaflokki. Við erum hins vegar sammála um margt. Þar held ég raunar að við séum sammála um stærstu þættina, ef svo má segja. Ég held að við séum sammála um það annars vegar að við eigum að læra af reynslu annarra ríkja og við erum sammála um að það sé fullkomlega óverjandi að verja tugum milljarða á ári úr okkar sameiginlegu sjóðum í kerfi sem gengur út á að afgreiða umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í er breytingartillaga í frumvarpinu sem gengur út á það að svipta fólk atvinnuleyfinu. Ef það hefur fengið útgefið atvinnuleyfi sem er bundið við málsmeðferðartímann þá er verið að leggja til að í stað þess að það falli úr gildi við lokaniðurstöðu um synjun þá falli það úr gildi við ákvörðun Útlendingastofnunar. Þá er kæruferlið allt eftir og í mörgum tilvikum er kæran sjálfvirk.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, í ljósi þess (Forseti hringir.) að við viljum ekki vera með fólk í þjónustu sem hvorki (Forseti hringir.) vill hana né þarf raunverulega á henni að halda, (Forseti hringir.) hvort það sé í samræmi við markmið um skilvirkni og betri meðferð ríkisfjármuna að samþykkja þetta ákvæði.
(Forseti (ÁsF): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutíma.)