154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:43]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Ég held að við ættum að leita allra leiða til þess að flæðið sé eins gott og nokkur kostur er og íþyngjandi áhrif af regluverkinu eins lítil og mögulegt er, bæði fyrir þá sem hingað sækja og sömuleiðis fyrir kerfið okkar hér heima. Hv. þingmaður veit að ég hef mikið haft miklar áhyggjur af þessum seglum, „pull factors“ eins og þeir eru kallaðir. Ég hef metið það sem svo að m.a. þessi hluti regluverksins, eins og hann liggur í dag, hafi þessi áhrif að einhverju marki þó að þetta sé ekki eitt (Forseti hringir.) af stóru atriðunum í þeim efnum. Ég held að markmið (Forseti hringir.) um að fækka umsóknum, ef svo má segja, sé framar í röðinni hvað (Forseti hringir.) heildarhagsmunamat mitt varðar en áhrifin af þessu. Ég hef samt skilning á sjónarmiðum hv. þingmanns.

(Forseti (ÁsF): Þingmenn verða að nýta þann tíma sem þeir hafa sem er ein mínúta í hvorri umferð.)