útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni heiðarlegt svar. Nú er það því miður svo að það er nákvæmlega ekkert sem liggur fyrir um að þessi atriði séu einhvers konar segull. Í flestum ríkjum Evrópu hefur fólk einhvern kost á því að komast tímabundið út á vinnumarkað. Það eru reyndar mjög fáir sem uppfylla þau ströngu skilyrði sem eru fyrir því að slíkt leyfi fáist veitt. Það er ekki veitt nema einstaklingum sem geta sannað á sér deili, sem eru ekki að tefja mál sitt og eru með alla pappíra í lagi og þeir þurfa að kaupa eigin sjúkratryggingu, þurfa að vera búnir að útvega sér húsnæði og útvega sér vinnu, allt þetta. Þetta er í rauninni ekkert sérstaklega stór hópur og greinilega hópur sem er með mikla sjálfsbjargarviðleitni. Þetta er það þungt ferli og það lítið að ég get ekki ímyndað mér að það sé neinn segull þarna. Það er í öllu falli ekkert, engin athugun, rannsókn, skýrsla né neitt, sem liggur að baki þeim kenningum að þetta séu einhvers konar seglar. Segjum að þetta fæli í burtu tvo á ári en festi sex fjölskyldur (Forseti hringir.) á kerfinu í staðinn. Finnst hv. þingmanni það (Forseti hringir.) réttlætanlegur fórnarkostnaður fyrir það að losna við einhverja tvo umsækjendur á ári?