útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þegar við horfum á þær tölur sem hafa blasað við okkur undanfarin ár, þó að við tækjum Úkraínu alveg út fyrir sviga, þá held ég að tölurnar séu kannski hærri en einhverjir tveir sem þarna væru undir. Ég held að við ættum miklu frekar að vera að horfa til þess að gera vinnumarkaðshlutann, komu fólks hingað til lands til að starfa, aðgengilegri. Ég held að þarna sé kannski, svo að ég og hv. þingmaður skiljum þetta eins, frekar um þá að ræða sem eru að leita sér betra lífs en að forða sér frá hættum og þar fram eftir götunum. (Forseti hringir.) Ég held því að við ættum að horfa meira til þess í samhengi þessa alls að gera breytingar á hinum hluta kerfisins sem snýr að vinnumarkaðsþáttunum.