154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:48]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar bara að byrja á að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna. Ég verð að segja eitt, herra forseti. Mér leiðist svolítið orðræðan í kringum flóttafólk. Það er talað um straum, það er talað um vatn. Þetta er ekki straumur, þetta er ekki vatn, þetta er fólk sem er að þjást. Þetta er fólk af holdi og blóði. Það að tala um þetta sem eitthvað annað gerir okkur fjarlægari vandanum og tekur manneskjurnar bara út úr þessu öllu saman. Ég verð bara að segja það. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hv. þingmaður að það að fjölskyldur geti ekki sameinast fyrr en eftir tvö ár sé góð þróun í málefnum útlendinga?