útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að sú reglubreyting sem hér er lögð til sé til bóta, já. Og það má halda því til haga að það eru að mörgu leyti minni skilyrði, eða mýkri skilyrði, fyrir fjölskyldusameiningu eftir tveggja ára tímamarkið en í sumum þeirra kerfa sem við erum helst að horfa til til samanburðar. Það eru ýmis skilyrði sem við þekkjum frá nágrannalöndunum sem þarf að uppfylla til viðbótar við tveggja ára tímann. Svo er auðvitað þessi breyting sem var gerð við 2. umræðu, að fjölga undanþáguheimildum hvað fjölskyldusameiningu varðar, það hefur sín áhrif. Ég held því að þetta sé skref til betri áttar hvað það varðar að ná betur utan um þennan málaflokk en verið hefur. Ég held að fyrirkomulagið eins og það hefur verið hafi verið allt of opið, því miður.