útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég velti fyrir mér: Fjölskyldur munu þá ekki sameinast fyrr en eftir tvö ár a.m.k. Og það er í raun mjög erfitt að fá sameiningu þegar fólk er búið að sækja um hana; kannski eru þetta þá þrjú til fjögur ár. Mig langar bara að spyrja: Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að umboðsmaður barna gagnrýnir það mjög harðlega að réttindum barna sé ekki fylgt þarna? Umboðsmaður barna telur að þetta sé mjög mikil afturför þar sem við höfum samþykkt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, og þetta tryggi ekki að við stöndum við það eftir bestu vitund. Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því?