útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þar sem tíminn er mjög takmarkaður er stysta leiðin að svari kannski sú að ég taki í meginatriðum undir þau sjónarmið er þetta varðar úr áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar sem liggur hér frammi og er sem sagt fyrir 3. umræðu. Þetta er auðvitað atriði sem var skoðað á milli 2. og 3. umræðu og ég held að það sé verið að ganga frá þessum hluta málsins með viðhlítandi hætti og skynsamlegum gagnvart hagsmunum þessara barna. Og já, ég tek bara undir það sem kemur fram hér í nefndarálitinu undir millifyrirsögninni Gildissvið barnasáttmálans.