útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Forseti. Ég ætla að víkja máli mínu aðeins að því ákvæði þessa frumvarps sem gengur út á að afnema 2. mgr. 36. gr., þ.e. skyldu stjórnvalda til að taka mál til efnismeðferðar þrátt fyrir að þurfa þess ekki samkvæmt reglum; að þrátt fyrir heimild til að vísa einstaklingi eitthvert annað þá þurfi stjórnvöld í ákveðnum tilvikum að taka málið til efnismeðferðar hér á landi. Greinin hefur staðið í lögum ansi lengi og mig langar örstutt að fara aðeins yfir tilkomu ákvæðisins eins og það er í lögunum í dag.
Fyrir allmörgum árum síðan var þetta ákvæði með þeim hætti að það átti einungis við um svokölluð Dyflinnarmál og önnur mál en ekki mál þar sem einstaklingi hafði verið veitt alþjóðleg vernd í öðru ríki, svokölluð verndarmál. Í 1. mgr. 36. gr. núgildandi laga eru nokkrar heimildir til þess að vísa fólki eitthvert annað. Sú fyrsta, a-liðurinn, er ef einstaklingur hefur fengið vernd í öðru landi og svo eru b, c og d-liðir, sem voru á tímabili bara b og c, sem lúta að Dyflinnarreglugerðinni og öðrum alþjóðlegum samningum. Fyrir 2016 var þessi skylda stjórnvalda til að taka mál til efnismeðferðar hér á landi t.d. ef einstaklingur hafði einhver sérstök tengsl við landið eða ef einhverjar sérstakar ástæður væru fyrir hendi sem gerðu eðlilegt að taka málið til efnismeðferðar á Íslandi. Það gilti ekki þegar um var að ræða einstaklinga sem fengu vernd. Hér kom upp mjög frægt mál á sínum tíma. Hingað sótti margt fólk frá Grikklandi, ekki grískir ríkisborgarar heldur fólk sem hafði fengið vernd í Grikklandi eða komið þar við og féll undir Dyflinnarreglugerðina. Það sem er kaldhæðnislegt við það er að frá árinu 2010 hefur Ísland ekki sent fólk til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Nú eru örugglega margir ringlaðir vegna þess að fólk áttar sig ekki á því að það er grundvallarmunur á því hvort einstaklingi hafi verið veitt vernd í öðru ríki eða hvort einstaklingur hafi bara haft þar viðkomu eða að ríkið beri ábyrgð á meðferð umsóknarinnar, það er sem sagt óafgreidd umsókn. Ef umsókn er óafgreidd eða viðkomandi hefur fengið synjun, í öðrum tilvikum en að hann hafi fengið vernd, þá er það Dyflinnarreglugerðin sem ræður. Og þegar um er að ræða ábyrgð Grikklands, grískra stjórnvalda, við meðferð máls, þá er málið tekið til efnismeðferðar hér á landi. Þetta hefur verið gert núna í meira en áratug. Þegar fólk hefur fengið vernd þá var það hins vegar þannig til 2016 að fólki var snúið við á þröskuldinum og sent aftur til Grikklands.
Upp kom mál sem ég held að hafi slegið þjóðina mjög illa. Ungt par með tvær litlar stúlkur á leikskólaaldri hafði hafst við á götunni í Grikklandi og þjáðst mjög og móðirin grét sáran á sviði Borgarleikhússins þar sem verið var að fjalla um þeirra mál, en það átti að þvinga þau til þess að fara aftur til Grikklands og hírast þar á götum úti. Á þeim tíma var ekki heimild í lögunum til að taka málið til efnismeðferðar á Íslandi. Kærunefnd útlendingamála fór í það sem ég myndi kalla lögfræðilega loftfimleika til að finna leið til þess að þau gætu verið hér á landi og veitti þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Það var rosalega mikið, ætla ég að leyfa mér að segja, skítamix, vegna þess að auðvitað á flóttafólk að vera með stöðu flóttamanns en ekki árslangt dvalarleyfi sem þá fylgdu ekki einu sinni atvinnuréttindi. Hvað var gert til þess að leysa þetta? Það komu upp fleiri mál sem voru svona, sem stuðuðu fólk mjög illa, sérstaklega þegar um börn var að ræða. Í kjölfarið náðist þverpólitísk sátt um að setja heimild inn í lögin, skyldu í ákveðnum tilvikum, fyrir íslensk stjórnvöld til að taka þessi mál til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mælist til þess. Þessu ákvæði er ekki mikið beitt í framkvæmd. Það er oftast þannig að fólk er sent til baka. En nú á að afnema það og tilgangurinn er í raun ekki sjáanlegur. Jafnvel þegar þetta ákvæði var ekki í lögunum eða gilti ekki um þessa hópa þá voru þau að leita hingað, þau leituðu mjög mikið hingað. (Forseti hringir.) Ástæðan fyrir því að hingað leitar margt fólk sem hefur haft viðkomu í öðrum Evrópuríkjum er augljós. Það er ekki af því að regluverkið (Forseti hringir.) okkar sé svo veikt og aðlaðandi heldur af því að við erum eyja úti í hafi (Forseti hringir.) og öll Evrópa er á milli. Þetta er einfalt og þetta sér hver manneskja sem getur litið á landakortið.
(Forseti (ÁsF): Forseti biður ræðumenn að virða þann ræðutíma sem þeim er úthlutaður.)