154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:59]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Varðandi 36. gr. um það að Ísland eigi að taka til efnismeðferðar og jafnvel veita einstaklingi vernd sem er kominn með vernd í öðru ríki á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland, þá vil ég gera þá athugasemd að hann er kominn með vernd. Hann er kominn í skjól frá þeirri ógn sem flóttamannasamningurinn gerir ráð fyrir að hann eigi rétt á að fá vernd gagnvart, samkvæmt þeirri alþjóðlegu skuldbindingu. Þessi sérregla er mjög sérstök og ég veit ekki til þess að hún að sé í öðrum ríkjum, hún er ekki í Noregi alla vega. Og þá er spurningin: Af hverju ættum við að veita einstaklingi vernd sem er kominn með vernd? Hann gæti komið hingað og sótt um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla eða þá að hann gæti fengið vinnu hérna o.s.frv. Við erum að íþyngja kerfinu, hælisleitendakerfinu hjá okkur með því að hafa þessa sérreglu.

Varðandi Grikkland og að við séum að fara að dæma hvernig ástandið er í Grikklandi, þá tel ég það ekki vera okkar. Það er ekki inni í hælisleitendakerfinu að við eigum að dæma hvernig önnur ríki taka á móti flóttamönnum. Það eru 50.000 flóttamenn í Grikklandi. Í ríki sem er við hliðina, fyrir austan, eru 3,6 milljónir flóttamanna, í Tyrklandi. Það er ekkert í flóttamannasamningnum sem segir að okkur beri að meta hvernig ástandið er hjá flóttamönnum í öðrum ríkjum. Það sem hins vegar stendur er að það er samábyrgð, það á að vera samábyrgð milli ríkja.

Önnur spurningin er: Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því að hvort við höfum ekki axlað þá ábyrgð sem Íslandi ber miðað við þann hlutfallslega mikla fjölda sem við erum að taka á móti miðað við önnur ríki? Þetta eru átta sinnum fleiri umsóknir en annars staðar á Norðurlöndunum, 582 á 100.000 íbúa árið 2022 á meðan þær voru í kringum 80 á hinum Norðurlöndunum.