154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:01]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég er hrædd um að flóttamenn í Grikklandi séu miklu fleiri en 50.000. Ég fletti því upp hérna á internetinu á meðan ég hlustaði á andsvar hv. þingmanns og þar fékk ég töluna 150.000 árið 2022. Það sem ég var að benda á í ræðu minni er að þegar við vorum ekki með þetta ákvæði var ekkert minna af fólki að koma hingað sem hafði haft viðkomu í öðrum Evrópuríkjum. Hlutfallið var ekki eitthvað mikið minna. Það sveiflast reyndar dálítið á milli ára og það var eitt ár þar sem hlutfallið fór talsvert hátt upp en svo minnkaði það aftur vegna þess að það er mikil sveifla í þessum málum. Núna hefur umsóknum fækkað mjög mikið, ekki síst vegna þess að straumur frá Venesúela og frá Úkraínu hefur minnkað. Það hefur ekkert með löggjöfina að gera. Það hefur ekkert að gera með þær breytingar sem hv. þingmenn meiri hlutans stæra sig af hérna, bara alls ekki neitt. Það hefur mögulega með einhvers konar skautun að gera og meiri útlendingaandúð í samfélaginu, sem er sannarlega búið að ýta undir, en að öllum líkindum eru það allt aðrir faktorar sem ráða þar.

Ég er á því að við eigum að axla ábyrgð. Ég held líka að við eigum bara að átta okkur á því að það skiptir máli hvernig við komum fram við fólk og að við komum fram við fólk eins og fólk. Hv. þingmanni finnst ekki skipta máli að einstaklingur hafi sérstök tengsl við Ísland og hann geti bara verið einhver staðar annars staðar af því að hann er ekki lífshættu þar. Ég held að hv. þingmanni þætti nú eitthvað um það ef honum yrði gert að halda sig fjarri fjölskyldu sinni bara af því að hann er ekki í lífshættu. Það blindar okkur kannski svolítið í forréttindum okkar hérna að við búum við gríðarlega mikið ferðafrelsi. Flóttafólk býr ekki við jafn mikið ferðafrelsi og við sem höldum á íslensku vegabréfi. Sérstök tengsl samkvæmt 2. mgr. 36. gr. hafa verið túlkuð gríðarlega þröngt í framkvæmd og dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla eru gríðarlega fátíð. Þau eru ekki aðgengileg fólki. Sérstök tengsl hafa jafnvel ekki verið metin sem slík milli systkina. Við höfum verið með mál þar sem fólk kemur til Íslands vegna þess að það á systkini á Íslandi (Forseti hringir.) og kærunefnd útlendingamála segir: Nei, þetta eru ekki sérstök tengsl (Forseti hringir.) af því að þið spjölluðu ekki nógu mikið saman í fyrra.