154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:03]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samkvæmt International Rescue Committee, þetta er á heimasíðu rescue.org, eru u.þ.b. 50.000 flóttamenn í Grikklandi. Umsækjendur um hæli eru hins vegar 120.000, 119.000, svo það liggi fyrir. En ég ætla ekki að deila við hv. þingmann um staðreyndir. Það má fletta þessu öllu upp.

Annað er líka mikilvægt: Ekki að gera mér upp skoðanir. Ég er að segja það að hælisleitandi sem er kominn með vernd í öðru ríki geti sótt um dvalarleyfi, t.d. á grundvelli sérstakra tengsla. Til hvers að vera að íþyngja íslensku flóttamannakerfi með umsókn um hæli og alþjóðlega vernd þegar einstaklingurinn er kominn með vernd? Það er miklu einfaldara að hann fari þá dvalarleyfisumsóknarleiðina og fái þannig dvalarleyfi á Íslandi. Það er enginn með tvær regnhlífar en það geta allir labbað með eina regnhlíf á milli landa. Þá geta þeir komið hingað með alþjóðlega vernd í öðru ríki og fengið dvalarleyfi. Það er út á það sem þetta gengur. Þetta er að sjálfsögðu segull á önnur ríki. Það er líka mikilvægt atriði að við séum að uppfylla okkar alþjóðlegu skuldbindingar í þessum málaflokki eins og öðrum. Ástandið í Grikklandi er miklu betri en ástandið á Gaza, miklu betra en í Darfúr, miklu betra en í Afganistan, Jemen og hvert sem við förum í heiminum. Það er það sem þetta snýst um. Við höfum verið með sérreglur hérna sem hafa leitt til þess að þessi málaflokkur hefur algjörlega farið úr böndunum. Það gerðist í Svíþjóð, þetta fór algerlega úr böndunum þar. Þar tóku þeir á móti sem samsvarar því að við tækjum á móti 5.200 manns árið 2015 og það hefur sett allt á annan endann í pólitíkinni þar. Það er kominn nýr flokkur sem er með þetta aðallega á stefnuskránni, að fækka hælisleitendum. Þeir kölluðu út herinn á síðasta hausti til að stemma stigu við glæpum og öðru slíku. Er það sú draumamynd sem hv. þingmaður sér fyrir sér, að við lærum ekki af mistökum annarra ríkja í þessum málaflokki? Hvað er það sem hv. þingmaður vill? Reynsla annarra ríkja (Forseti hringir.) liggur algjörlega fyrir og það virðist vera sem hv. þingmaður vilji ekki að við lærum af þessari reynslu.