154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil einmitt að við lærum af reynslu annarra ríkja og séum ekki að apa upp eftir þeim mistökin, eins og við erum að gera t.d. með þessu frumvarpi, heldur lærum af þeim. Kerfið í Noregi er allt öðruvísi heldur en í Danmörku. Það hefur gefist betur en við erum ekki að herma eftir því. Við erum bara að herma eftir Danmörku af því að við erum að herma eftir Danmörku. Það er ekki þannig að það að halda lögum óbreyttum þýði einhverjar þúsundir, tugþúsundir af fólki sem kemur hingað. Það er að koma hingað og hefur hingað til verið að koma hingað, allur sá fjöldi sem mögulega getur komið hingað. Það eru ekki fleiri en þetta sem mögulega geta komið til Íslands. Það er bara þannig. Landamærin hérna eru gríðarlega lokuð. Þessar breytingar sem við erum að gera leysa engan þann vanda. Ég held að við hv. þingmaður séum að einhverju leyti ósammála um það hver vandinn er en að einhverju leyti sammála. Fjöldinn er ekkert vandamál ef fólk getur fengið tækifæri til að hafa í sig og á og verða hluti af samfélaginu. Þá er fjöldinn ekkert vandamál, ekki frekar en mannfjölgunin hérna bara í formi fæðinga.

Mig langar hins vegar að benda hv. þingmanni á það að dvalarleyfi er nákvæmlega það sem fólk er að sækja um. Fólk er bara að sækja um dvalarleyfi. Einstaklingur sem kemur hingað og er með stöðu flóttamanns í Grikklandi er að sækja um dvalarleyfi hérna. Þetta fer í þetta ferli vegna þess að hann er flóttamaður.

Ég ætla að benda hv. þingmanni á, af því að ég veit að hann er löglærður og hefur mikinn áhuga á lögum, að lesa 47. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Það gæti gert íslenskum stjórnvöldum kleift, ef flóttamaður kemur hingað sem hefur fengið vernd í Grikklandi og hann á kannski systkini hérna eða hefur sérstök tengsl eða eitthvað annað, að veita honum dvalarleyfi á meðan hann bíður í afgreiðslunni. Það þarf ekkert að skoða málið upp á nýtt. Það er einhver framkvæmd sem íslensk stjórnvöld ákváðu upp á sitt einsdæmi að þyrfti að fara fram og þess vegna er þetta svona þungt í vöfum. Þó að Grikkland sé búið að segja að jú, þetta sé flóttamaður, þá þurfum við að skoða það alveg upp á nýtt og fara í gegnum málið (Forseti hringir.) algjörlega frá grunni. Það er ekki það sem lögin segja og það er auðvitað engin skilvirkni (Forseti hringir.) fólgin í því. Skilvirknin er til staðar í lögunum, við erum bara að beita þeim (Forseti hringir.) bandvitlaust.

(Forseti (ÁsF): Þingmaðurinn verður að láta tímann sem henni er úthlutað duga til að nota í svarið.)(ArnG: Ég geri mitt besta.)