útlendingar.
Virðulegi forseti. Við erum komin í 3. umræðu um mál sem hæstv. dómsmálaráðherra og ríkisstjórnin telur ein mikilvægustu lög þessa þings, frumvarp um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðleg vernd. Við fengum hér frumvarp Jóns Gunnarssonar þegar hann var hæstv. dómsmálaráðherra. Ég sit í allsherjar- og menntamálanefnd og við fjölluðum um það og eyddum gríðarlegum tíma í að fjalla um það frumvarp og það var alveg deginum ljósara að það var ekki endirinn á umræðu um þennan málaflokk hér á Alþingi Íslendinga, svo mikið var ljóst. Það var útvatnað frumvarp og augljóst að það var ekki að taka á þeim stóra vanda sem við erum að glíma við í þessum málaflokki sem er sá að við erum að taka á móti allt of mörgum hælisleitendum á Íslandi. Við heyrum það frá kennurum í ákveðnum skólum að 80–90% af nemendum tali ekki íslensku og eru börn flóttamanna og við ráðum ekki við að taka á móti svona mörgum. Bæði Hafnarfjarðarbær og Reykjanesbær hafa lýst því yfir að þeir ráði ekki við að taka á móti svona mörgum flóttamönnum. Svo einfalt er það.
Allt á þetta sína sögu og sagan er sú að árið 2016 var sátt gerð hér á Alþingi um að breyta lögum um útlendinga, sem laut að hælisleitendum. Um þetta var sátt. Ég man það sem borgari í þessu ríki sem fylgdist með þessari umræðu að það var sátt um það hve vel væri staðið að málaflokknum og það væri nú gott að Alþingi Íslendinga væri sammála um það hvernig löggjöfin ætti að vera þetta, það átti ekki að pólarísera eitt eða neitt. Þetta átti bara að vera svona og þetta var hinn góði salómonsdómur. En þetta eru hin mestu ólög sem Íslendingar hafa sett síðustu áratugi ef ekki árhundruð, svo mikið er víst.
Árið 2015 tók Ísland á móti 356 umsóknum um alþjóðlega vernd, um hæli. Árið 2016, eftir gildistöku laganna, var talan komin upp í 1.100, það voru rúmar 1.100 umsóknir. Árið 2022 var talan komin upp í rúmlega 4.500. Þá vorum við í þriðja sæti í Evrópu yfir þau lönd sem tóku á móti hlutfallslega flestum umsóknum í Evrópu. Einangruð eyja í Norður-Atlantshafi, eitt einangraðasta ríkið í allri Evrópu. Það virðist vera sem við gerum okkur ekki grein fyrir því að við búum í samfélagi sem er einangrað frá meginlandi Evrópu og við erum klárlega einangraðasta þjóð Evrópu. En nei, við erum komin í þriðja sæti hlutfallslega í móttöku flóttamanna. Hvað Norðurlöndin varðar þá tókum við árið 2022 á móti 582 umsóknum á hverja 100.000 íbúa, Svíþjóð var með 133 umsóknir á 100.000 íbúa, Danir með 76 á hverja 100.000 íbúa, Norðmenn með 85 og Finnar með 87 umsóknir á hverja 100.000 íbúa. Við vorum með margfalt fleiri umsóknir en önnur ríki Norðurlanda. Það má allt rekja til þess að við settum lög árið 2016 í algjörri pólitískri sátt og þingið var svo stolt af því, það var mikið fjallað um þetta í fréttum. Það væri gaman að horfa á fréttaklippurnar aftur um hvað þetta var nú allt æðislegt árið 2016. Þetta er afleiðingin af þessari sátt. Það segir einhvers staðar að leiðin til heljar er skreytt góðum ásetningi. Svo er eitthvað annað máltæki sem ég kann ekki alveg um að því fleiri vitringar sem koma saman, því verri verður útkoman og það var alveg augljóst mál að það átti við í þessu máli.
Við erum komin í algjörar ógöngur í þessum málaflokki, litla Ísland, 400.000 manna samfélag norður undir heimskautsbaugi, og það að við skulum ekki geta tekið á þessu máli í eitt skipti fyrir öll með einföldum hætti er bara sorglegt, svo ekki sé meira sagt. Þessi ríkisstjórn hefur ekki getað samið sig niður á alvörulöggjöf í þessum málaflokki sem stenst tímans tönn. Þess vegna erum við komin aftur hérna.
Með þessu frumvarpi er verið að reyna að reyna að færa okkur í átt að Norðurlöndunum. Við erum ekki komið þangað sem Norðurlöndin eru en við erum að reyna að gera það. Til dæmis varðandi fjölskyldusameiningar, þá er um allar fjölskyldusameiningar á Norðurlöndum gerð krafa um inngildingu. Það er gerð krafa um það að einstaklingar sé kominn með vinnu, með húsnæði og tali tungumálið. Af hverju eru Norðurlöndin með þessa reglu? Af hverju er þetta? Jú, það er til þess að létta á velferðarkerfinu. Það er gerð krafa á einstaklinginn sem er kominn í þeirra samfélag, í skjóli alþjóðlegrar verndar, í skjól sem flóttamaður, um að hann sé ekki bara á sósíalnum, sé ekki háður velferðarkerfinu og þá fái hann rétt til fjölskyldusameiningar. Það er gerð krafa um hann sé virkur í samfélaginu, sé með vinnu, taki þátt í samfélaginu og þá geti fjölskylda hans komið. Þá getur hann séð fjölskyldunni farborða. Það hafa verið gerð stórkostleg mistök á Norðurlöndunum vegna þess að krafa velferðarsamfélaganna á Norðurlöndunum hefur ekki verið sú að einstaklingurinn beri ábyrgð og þurfi að taka virkan þátt í samfélaginu, afla tekna til að geta séð fjölskyldu sinni farborða. Nei, ríkið hefur tekið þennan kaleik, tekið þessa byrði af einstaklingunum og þeir hafa fengið, áður fyrr, fjölskyldusameiningar. Hvað gerist með þessu? Jú, það myndast svona undirmenning, subkúltúr heitir þetta á góðri íslensku, sem tekur ekki þátt í samfélaginu, er einangraður frá öðrum sviðum samfélagsins. Það er stóra vandamálið á Norðurlöndunum. Það eru heilu hverfin, Rosengård í Malmö og fleiri hverfi, fyrir utan Stokkhólm, fyrir utan Gautaborg og fleiri borgir, þar sem fólkið tekur ekki þátt í samfélögunum. Það kemur frá fátækum ríkjum og lætur sér nægja velferðarpeninginn í hverjum mánuði og það lítur svo á að það þurfi ekki að fara að vinna. Þessi ríki eru öll að reyna að verja velferðarkerfi sín með því að gera kröfu um inngildingu. En við gerum það hins vegar ekki eftir tvö ár. Það er sorglegt. Jú, eftir eitt ár á aðeins að reyna að ýta fólki út á vinnumarkaðinn. Það hafa verið erfiðleikar og stvinnuþátttaka hælisleitenda hefur verið lítil í þessum löndum. Það er stóra vandamálið. Freud sagði á sínum tíma, skrifaði um þetta bók, það kemur fram í einu riti hans, að ef einhver ætli að taka þátt í samfélaginu þá er það í gegnum vinnu, í gegnum brauðstritið. Það er þannig sem einstaklingur tekur þátt í samfélaginu, með vinnu sinni. Við gerum ekki einu sinni kröfu um það eftir tvö ár. Ég skal lofa ykkur því að það munu koma fréttir um það þegar einstaklingur sem er ekki í starfi, búinn að vera tvö ár á Íslandi og fer að fá fjölskyldusameiningu þá fara samfélagsmiðlar að loga og það verða stórfréttir um það. Það kemur tiltölulega stór fjölskylda til landsins og það eru engar kröfur um að hann sé í starfi eða í húsnæði. Svo einfalt er það.
Þetta er gott dæmi um enn eitt hálfkákið, það er ekki verið að setja lög til samræmis við Norðurlöndin á grundvelli þeirra raka sem Norðurlönd hafa lagt fram um þetta. Ég var í Noregi um daginn og spurði Norðmann að þessu. Hann hristi bara hausinn: Hvað, ætlið þið ekki að gera kröfu um að fólk sé í starfi, sé að vinna? Hann skildi þetta ekki. Við skiljum þetta ekki hér heldur en samt ætlum við að samþykkja þetta.
Nefndarálit meiri hlutans sem hér liggur fyrir, sem ég tek undir, er gott svar við áliti umboðsmanns barna um að breytingarnar taki ekki með fullnægjandi hætti mið af réttindum barna samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ég tel að það séu færð ágætisrök fyrir því. Þetta er leiðbeiningarákvæði, 10. gr. í barnasáttmálanum, um það að það á að sjálfsögðu alltaf að taka tillit til hagsmuna barnsins og það eru ákvæði um það í núgildandi lögum. Ef ég man rétt þá er það í 31. gr. laganna þar sem er fjallað um hagsmuni barna. Það má raunverulega segja að í þessari umfjöllun umboðsmanns barna þá segir hann ekki að lögin brjóti barnasáttmálann, þau gera það ekki. Í nefndaráliti Pírata, 1. minni hluta, segir að lögin fari á skjön við hann. Ég spurði hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um það. Jú, það fer á skjön, hún svaraði þessu ekki alveg. Þetta er svo dæmigert fyrir umræðuna sem maður hefur séð hjá mannréttindaiðnaðinum um þau frumvörp sem koma til allsherjar- og menntamálanefndar um þetta. Það er verið að vara við, það er aldrei sagt að lögin séu brotin en samt er verið að vara við. Við sjáum þetta um lögreglufrumvarpið t.d. Þetta eru ekki góðir dagar hjá mannréttindaiðnaði Íslands, þessir vordagar eftir áramót, svo ekki sé meira sagt. Annaðhvort brýtur þetta frumvarp í bága við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eða ekki. Það gerir það ekki. Það er mín skoðun og ég tel að það séu færð sæmileg rök fyrir því hér. Það eru ákvæði í lögunum þar sem er komið inn á það að gæta eigi í hvívetna hagsmuna barnsins. Það er í 31. gr., þar er sérstaklega nefnd hagsmunagæsla barns. Það er meira að segja fjallað um þetta í 10. gr., 17. gr., 24.–26. gr., 28.–31. gr., 33. og 37. gr. Það er alls staðar fjallað þar um hagsmuni barns og að á stjórnsýslustigi sé tekið tillit til hagsmuna barnsins. Þetta snýst alltaf um hagsmuni barns, alltaf. Með fjölskyldusameiningu er verið að leitast við að fjölskyldan fái að koma saman eftir tvö ár án skilyrða, eftir eitt ár með skilyrðum. Ég hefði gjarnan viljað hafa það þannig og það mun örugglega koma í framtíðinni að það verði settar inngildingarkröfur eftir tvö ár líka.
Ákvæðið sem er undir í barnasáttmálanum er 9. gr. Þar segir, með leyfi forseta:
„Aðildarríki skulu tryggja að barn sé ekki skilið frá foreldrum sínum gegn vilja þeirra, nema þegar lögbær stjórnvöld ákveða samkvæmt viðeigandi lögum og reglum um málsmeðferð að aðskilnaður sé nauðsynlegur með tilliti til hagsmuna barnsins enda sé sú ákvörðun háð endurskoðun dómstóla.“
Þetta er mjög skýrt ákvæði. Samt treystir umboðsmaður barna sér ekki til að segja að við séum að brjóta 9. gr. barnasáttmálans með því að innleiða þessi lög. Þetta er þjóðréttarleg skuldbinding og einnig leiðbeiningarregla þegar kemur að börnum.
Við byggjum breytingartillögu okkar á því sem dómsmálaráðherra sagði í gærkvöldi í eldhúsdagsumræðunum, um að það ætti að vísa þeim sem fremdu alvarlega glæpi úr landi. Þetta er sérregla í 99. gr. laga um útlendinga. Í 99. gr. er heimild til að vísa brott útlendingum með dvalarleyfi ef þeir hafa gerst brotlegir við íslensk lög. Þar segir, með leyfi forseta, að heimilt sé að vísa útlendingi úr landi sem hefur dvalarleyfi ef — og svo koma liðir a–d; í a segir ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laga þessara eða af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi, í b-lið ef hann hefur á síðustu fimm árum afplánað refsingu í útlöndum eða verið dæmdur þar til refsingar fyrir háttsemi sem að íslenskum lögum getur varðað fangelsi lengur en eitt á, í c-lið ef hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar eða til að sæta öryggisráðstöfunum fyrir háttsemi sem varðar fangelsi, og í d-lið ef það er nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna.
Þetta ákvæði trompar 42. gr. laganna um bann við flutningi úr landi. Sérreglan núna sem við erum að leggja til var sérregla, þetta ákvæði kemur beint upp úr flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, 33. gr., þar sem segir, með leyfi forseta:
„Þó getur flóttamaður samt sem áður ekki krafizt þess að njóta góðs af þessu ákvæði, ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi landsins, sem hann dvelur í, eða ef hann er talinn hættulegur þjóðfélaginu vegna þess að hann hefur með endanlegum dómi verið dæmdur sekur um mjög alvarlegan glæp.“
Það eru tvö atriði hérna undir, hann er hættulegur öryggi landsins og hann hefur framið mjög alvarlegan glæp. Þriðja atriðið sem við tökum líka til er f-liður 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þ.e. ef hann er stríðsglæpamaður. Þetta ákvæði var í lögum um útlendinga frá árinu 2002. Lögunum var breytt árið 2010 og ákvæðið var líka inni þá, árið 2010, þá var það í 3. mgr. 43. gr. laga nr. 96/2002, um útlendinga. Ég hef heyrt að það þurfi að skoða hvort þetta ákvæði okkar, og ég hef heyrt það áður sagt um breytingartillögur frá Flokki fólksins, passi lagatæknilega, það gangi ekki upp lögfræðilega. Ég hvet þá sem segja það og ætla ekki greiða þessari breytingartillögu atkvæði sitt en eru í hjarta sínu sammála um að lesa lögin frá 2002, lesa ákvæðið sem var í lögum um útlendinga frá 2002 og líka breytinguna sem var gerð 2010 vegna þess að þetta er orðrétt sama ákvæði og þá. Breytingartillagan er tekin orðrétt upp úr lögum um útlendinga frá árinu 2002. Ef þetta passaði við lögin þá, þá hlýtur það að passa núna og að sjálfsögðu gerir það það. En þetta er notað, þessi fyrirsláttur, þó að fólk sé hjartanlega sammála ákvæðinu, það eigi að reyna að verja ríkið gegn fólki sem er hættulegt öryggi landsins, sem hefur framið alvarlega glæpi eða er stríðsglæpamenn og að við getum þá vísað því úr landi. Þannig er nú það.
Þessi breytingartillaga á fullkomlega rétt á sér og færð góð rök fyrir henni. Formaður flokksins, hv. þm. Inga Sæland, færði góð rök fyrir máli sínu hér áðan (Forseti hringir.) og þetta er algjörlega í samræmi við það sem hæstv. dómsmálaráðherra sagði. En síðan er spurning um það hvort hún muni greiða breytingartillögunni atkvæði sitt eða ekki (Forseti hringir.) eða hvort þetta var bara eitthvað til að slá ryki í augun á þjóðinni í sjónvarpsumræðum hér í gærkvöldi.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á ræðutímann.)