154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:24]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Við hv. þingmaður erum ósammála um margt í þessum málaflokki en þó sammála um ýmislegt, einkum tvennt. Það er annars vegar það að við eigum að læra af reynslu annarra þjóða. Ég er hins vegar á því við eigum að læra af mistökunum og ekki endurtaka þau en ég er ekki alveg viss hver hans afstaða er þar, við erum kannski ekki sammála þar. En hitt er að við erum að eyða fáránlega miklum fjármunum í kerfið sem afgreiðir umsóknir um alþjóðlega vernd og einn stærsti kostnaðarliðurinn þar er húsnæði og framfærsla fyrir einstaklinga á meðan þeir bíða svars vegna þess að þeir mega ekki vinna. Í lögunum í dag er heimild fyrir einstaklinga til að sækja um tímabundið, skilyrt atvinnuleyfi. Það er algerlega skilyrt við málsmeðferðina og fellur sjálfkrafa úr gildi þegar málsmeðferðinni er lokið ef viðkomandi hefur fengið synjun. En í þessu frumvarpi er verið að leggja til að þeir fáu einstaklingar sem uppfylla þau ströngu skilyrði sem eru fyrir því að fá slíkt atvinnuleyfi missi það, það falli úr gildi þegar komið er út í hálfa á, þegar ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun liggur fyrir en ekki úrskurður kærunefndar, ekki lokaniðurstaða. Nú er málsmeðferðartíminn hjá kærunefnd útlendingamála alltaf að lengjast og er margir mánuðir í dag ef mér skjátlast ekki. Telur hv. þingmaður þessa breytingu til bóta? Þegar einstaklingur missir atvinnuleyfið er honum kippt aftur inn á velferðarkerfið, inn í þjónustuna sem hann vill ekki og þarf ekki á að halda ef hann gæti fengið að vinna. Nú erum við að reyna að hafa skilvirkari málsmeðferð og betri meðferð ríkisfjármuna. (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður að þessi breytingartillaga í frumvarpinu sé í samræmi við meint markmið málsins og sé til bóta fyrir okkar kerfi?

(Forseti (ÁsF): Forseti biðst velvirðingar á því að hafa gleymt því að þrír þingmenn hafa óskað eftir að veita andsvar og verður tíminn því ein mínúta í síðari umferð.)