154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:26]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og ég skil þessa breytingu þá er það þannig að þegar ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð þá frestar það ekki réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Hún gerði það áður. Eins og ég skil málið þá var það mikið stundað að vera að kæra til að fresta og lengja í dvölinni. Ég tel að þessi breyting sé að mörgu leyti bara ágæt og til þess fallin að undirstrika að ákvörðun Útlendingastofnunar sé endanleg niðurstaða máls, það séu ekki kærur að koma fram sem eru bersýnilega óþarfar. Ég tel satt að segja, varðandi þetta frumvarp, að það hafi verið atriði í því í samráðsgáttinni sem hefðu átt að vera áfram inni, t.d. varðandi talsmannaþjónustuna þegar var bersýnilega augljóst mál hvernig niðurstaðan yrði, hvort það væri já eða nei, þá þurfti ekki talsmann. Við erum að íþyngja kerfinu með því að hafa það. Ef þú veist hvert svarið er, ef stjórnvaldið veit hvert svarið er, þá þarf ekkert að vera að flækja málið og þá á bara að leyfa einstaklingnum að koma inn eða þá að hafna honum. Síðan á kærustigi á að leyfa talsmann.

Ég tel að þessi breyting sé skref í rétta átt en ég tel að það vanti mörg atriði í þetta frumvarp, sem voru meira að segja í samráðsgáttinni. Við í Flokki fólksins vorum með breytingartillögu hvað það varðaði en hún náði ekki fram að ganga í 2. umræðu.