154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég verð að leiðrétta misskilning varðandi það um hvaða ákvæði ég er að tala. Ég er að tala um 11. gr. frumvarpsins sem leggur til breytingar á 77. gr. sem fjallar um svokallað bráðabirgðadvalarleyfi og -atvinnuleyfi sem heimilt er að veita einstaklingi meðan á málsmeðferð stendur. Tillagan hefur ekkert með frestun réttaráhrifa að gera. Réttaráhrifum er í mjög mörgum tilvikum frestað sjálfkrafa í þessum málum og jafnvel er það svo að vegna þeirra breytinga sem samþykktar voru í fyrra og hv. þingmaður samþykkti með grænu ljósi, ef mér skjátlast ekki, þá er ákvörðun Útlendingastofnunar í mjög mörgum tilvikum sjálfkrafa kærð, kærist sjálfkrafa. Þannig að markmiðið með þessu ákvæði er ekki að fækka kærum eða að gefa Útlendingastofnun færi á að framkvæma ákvörðun þó að ekki sé kominn úrskurður frá kærunefnd heldur að svipta fólk atvinnuleyfi þannig að það verði aftur upp á kerfið komið á meðan það bíður niðurstöðu kærunefndar útlendingamála. Ég ætla að endurtaka spurningu mína: Telur hv. þingmaður þessa breytingu vera í samræmi við markmið frumvarpsins?