útlendingar.
Virðulegur forseti. Já, ég sé það hérna. Þegar ákvörðun Útlendingastofnunar er komin þá er hin löglega dvöl ekki lengur fyrir hendi. Vissulega eru alveg rök fyrir því að einstaklingurinn fái að halda áfram á meðan hann er í kæruferlinu. En þá er það hvatning til kæru. Það er það sem er málið. Ef hann missir atvinnuleyfið þá er hann í ólöglegri dvöl í landinu af því að ákvörðun stjórnvalds liggur fyrir um að ekki eigi að veita honum vernd og þá ber honum að fara. En ef hann ákveður að kæra þá gerir hann það með sinni ákvörðun og á sinn kostnað. Hann gæti fræðilega verið að gera það vegna þess að hann vildi fá að vinna lengur á meðan kærumeðferðin er fyrir hendi. (ArnG: … fer í þjónustu?)
(Forseti (ÁsF): Ekki samtal …)
Já, ég er að segja það, þá fer hann í þjónustu. Það er það sem er verið að leggja til, að hann fái ekki að halda áfram að vinna vegna þess að hann er í ólöglegri dvöl í landinu. Það er mjög rökrétt að stjórnvaldið segi: Nei, við ætlum ekki að samþykkja umsókn þína og þar með getur þú ekki verið með atvinnuleyfi. Að hann geti virkjað atvinnuleyfið með kæru er mjög óeðlilegt, tel ég. Þess vegna tel ég þetta rökrétt ákvæði í frumvarpinu.