154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar að halda aðeins áfram með síðasta andsvar og spyrja hv. þingmann um kostnaðinn sem fellur á hið opinbera með þeirri ákvörðun að taka atvinnuleyfi frá fólki sem er synjað um dvalarleyfi fram að því að kæruferli lýkur. Það væri miklu ódýrara ef ríkið myndi leyfa fólki að vinna áfram því að ef kærunefndin kemst að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld hafi haft rangt fyrir sér þá heldur lífið áfram. Það er varúðarsjónarmið gagnvart aðilanum sem stjórnvöld höfnuðu kannski á röngum forsendum. Það gerist að stjórnvöld hafa stundum rangt fyrir sér, merkilegt nokk. Svo er það þetta með breytingartillögu Flokks fólksins. Eins og hv. þingmaður rakti í ræðu sinni er það skilgreint hvernig fólk sem brýtur alvarlega af sér, brot sem varða einu ári eða meira t.d. — og þá er það ekki spurning um hvaða dóm viðkomandi fólk fær heldur ef brotið getur varðað slíkri refsingu, þá má vísa því á brott. Hv. þingmaður vísar í 42. gr. sem er grundvallarreglan um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Vill Flokkur fólksins sem sagt eiga það á hættu að fólk sem brýtur alvarlega af sér, sem vissulega getur verið, og er auðvitað ekki gott, verði sent þangað sem það er mögulega í lífshættu og gæti þess vegna lent í aftöku? Er það markmiðið með breytingartillögu þeirra að horfa frá þessari grundvallarreglu?