154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:33]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi 11. gr. frumvarpsins þá er það alveg klárt mál að um leið og Útlendingastofnun er búin að taka ákvörðun um að ekki eigi að samþykkja umsókn um hæli, alþjóðlega vernd, þá er sami einstaklingur í ólögmætri dvöl í landinu. Það er grundvallaratriði og þar með missir hann rétt til að vinna. Og það er mjög óeðlilegt að hann geti þá virkjað atvinnuleyfi með því að kæra. Vissulega getur vel verið að þetta kosti pening en þannig eru bara reglur. Það væri mjög óeðlilegt að einstaklingur gæti virkjað rétt sinn til atvinnu með því að kæra. Vissulega kostar þetta peninga. Við erum að tala um málaflokk sem 25 milljarðar fara í árið 2025.

Varðandi seinni spurninguna þá er það alveg kristaltært að við byggjum breytingartillögu okkar á 2. mgr. 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna frá 1951. Þar segir:

„Þó getur flóttamaður samt sem áður ekki krafizt þess að njóta góðs af þessu ákvæði, ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi landsins, sem hann dvelur í, eða ef hann er talinn hættulegur þjóðfélaginu vegna þess að hann hefur með endanlegum dómi verið dæmdur sekur um mjög alvarlegan glæp.“

Svo er það í þriðja lagi eins og í f-lið 1. gr. samningsins, að hann sé stríðsglæpamaður.

Já, ég tel að einstaklingur sem er hættulegur öryggi Íslands, hættulegur öryggi ríkisins og hættulegur þjóðfélaginu, hefur framið alvarlegan glæp eða er stríðsglæpamaður, eigi ekki rétt á dvöl á Íslandi. Ég tel að vísa eigi þannig einstaklingi úr landi algerlega í samræmi við það sem hæstv. dómsmálaráðherra sagði. Við getum ekki verið að hýsa fólk af þessu tagi á Íslandi. Og ég get tekið dæmi. Ástandið á Litla-Hrauni er orðið hræðilegt, m.a. í ljósi (Forseti hringir.) þess að við höfum verið að taka á móti fólki sem á enga samleið með íslensku samfélagi, hvorki í fangelsi né í samfélaginu sjálfu.