útlendingar.
Forseti. Ég er alveg sammála því, eins og það stendur í lögum, að fólk sem brýtur af sér á alvarlegan hátt missi dvalarleyfið. Það er þannig í lögum núna. Ég átta mig því ekki á tilgangi breytingartillögu Flokks fólksins, mér finnst hún mjög undarleg. Mér finnst hún einmitt jafn undarleg og mér fannst ræða hæstv. dómsmálaráðherra hér í gær. Mig langar líka að koma inn á annað sem hv. þingmaður sagði. Þegar einhver er dæmdur fyrir eitthvert brot í héraði og áfrýjar dómnum, hvenær fer hann í fangelsi? Fer hann í fangelsi um leið og búið er að dæma hann í héraði eða er beðið með niðurstöðuna og afplánunina þangað til niðurstaða er komin í Landsrétti eða áfrýjunarferlinu lokið?