útlendingar.
Virðulegi forseti. Varðandi breytingartillöguna þá erum við einfaldlega að taka aftur upp í íslensk lög ákvæði sem var í lögum um útlendinga, nr. 96/2002. (Gripið fram í.) Nákvæmlega sami texti, nákvæmlega sama orðalag, og líka eftir breytinguna sem var gerð árið 2010 á sömu lögum. Þetta er nákvæmlega sami texti og er samhljóða, eins og kemur fram í greinargerð, 3. mgr. 45. gr. eldri laga um útlendinga frá árinu 2002. Við erum því ekki að fara fram á neitt róttækt og þetta er grundvallað á 2. mgr. 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Það má þá deila um það ákvæði. Þá er bara að fara til Sameinuðu þjóðanna og ég veit að hv. þingmaður hefur farið á fundi þar hvað það varðar.
Varðandi réttaráhrif: Ef glæpamaður er dæmdur í héraði og hann áfrýjar þá er hann ekki látinn laus. Það er meginreglan. Ef um alvarlegan glæp er að ræða þá er hann ekki laus með því að áfrýja til Hæstaréttar. Hann er áfram í fangelsi. Og það er hægt að taka það fram í dómnum, (Forseti hringir.) ef ég man rétt, að áfrýjun breyti ekki réttaráhrifum dómsins. (Forseti hringir.) Það þarf ekki einu sinni að vera sakamál.