154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel að áliti umboðsmanns barna sé svarað mjög vel eða bara prýðilega í nefndaráliti meiri hlutans um að breytingarnar taki ekki með fullnægjandi hætti mið af réttindum barna samkvæmt ákvæðum barnasáttmálans. Það er útskýrt ágætlega þar. Af hverju tel ég það? Vegna þess að í lögunum í dag, t.d. í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, segir, með leyfi forseta:

„Varði mál samkvæmt þessum kafla barn skulu hagsmunir þess hafðir að leiðarljósi [og skal ávallt framkvæma sérstakt hagsmunamat]. Barni sem myndað getur eigin skoðanir skal tryggður réttur til að tjá sig í máli sem það varðar og skal tekið tillit til skoðana þess í samræmi við aldur og þroska …“

Svo er haldið áfram að fjalla um það.

Í 3. mgr. í 31. gr. er sérstakt ákvæði sem fjallar um hagsmunagæsla barns. Þar segir, með leyfi forseta:

„[Barna- og fjölskyldustofa] skal tryggja hagsmunagæslu barns [samkvæmt ákvæði laganna]. Heimilt er að víkja frá þessu ef augljóst er að viðkomandi er lögráða …“

Þetta er löng grein sem fjallar um hagsmunagæslu barns. Og að sjálfsögðu er í allri ákvarðanatöku í stjórnsýslunni alltaf hugsað um hagsmuni barna þegar börn eiga í hlut. Það koma fulltrúar Barna- og fjölskyldustofu sem gæta hagsmuna barna. Það er gert hvað þetta varðar. Hér erum við að tala um fjölskyldusameiningu. Kannski er fjölskyldufaðirinn kominn til landsins en fjölskyldan er annars staðar. Þá er spurningin: Eigum við að leyfa sameiningu, leyfa fjölskyldunni að koma til hans? Af hverju fer hann ekki til fjölskyldunnar t.d.? Af hverju þarf hann að vera aðskilinn frá fjölskyldunni? Þetta er allt annars eðlis en að segja að það eigi alltaf að sameina fjölskyldu þegar börn eru undir. Það myndi leiða til þess að fjölskyldur myndu alltaf bara átómatískt geta komið hérna, að það trompaði raunverulega þessa reglu sem er á Norðurlöndunum. Það gerir það ekki og það er fjallað um það í nefndarálitinu. Þetta er leiðbeiningarákvæði og þetta er leiðbeiningarákvæði fyrir stjórnsýsluna.