útlendingar.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Já, af hverju fer fjölskyldufaðirinn ekki aftur til baka? Væntanlega vegna þess að það er það mikil neyð í landinu, mögulega stríð, það er ástæða fyrir því. Ég held að flestir vilji vera heima hjá sér og vilji ekki fara annað. Ég held að við ættum að ganga út frá því að fólk sem kemur hingað á flótta geri það ekki að gamni sínu heldur sé það út af mikilli og alvarlegri neyð. En ég velti því þá fyrir mér: Ókei, það er verið að minnka réttindi til fjölskyldusameiningar, en telur hv. þingmaður að verið sé að minnka réttindi barna til fjölskyldusameiningar? Er ólíklegra nú en áður að börn fái að sameinast fjölskyldum sínum ef þetta verður samþykkt?