útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Forseti. Ég ætla aðeins að taka upp þráðinn þar sem hv. þm. Eyjólfur Ármannsson lagði hann frá sér. Hv. þingmaður talar um að við séum með þessum lögum, og þeim lögum sem við erum að samþykkja, hvernig við viljum hafa það, að reyna að uppfylla skuldbindingar okkar samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Þá vil ég bara vekja athygli hv. þingmanns á því að fólk sem er að flýja stríð og almennt hættuástand í heimalandi sínu telst ekki flóttamenn samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Ég ætla að freista þess að spyrja hv. þingmann og sjá hvort ég geti svælt hann upp í andsvar við mig til að svara þessari spurningu: Er hv. þingmaður á þeirri skoðun að við ættum ekki að vera með ákvæði sem veita fólki sem er að flýja stríðsástand vernd þó að við séum ekki skuldbundin til þess samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna?
Í þessu samhengi er líka áhugavert að líta til þess að þær breytingar sem er verið að gera hérna, þröskuldurinn sem verið er að setja fyrir fjölskyldusameiningu samkvæmt þessu frumvarpi, eiga ekki við um flóttamenn. Þær eiga við um það sem ég held reyndar að almenningur í daglegu tali álíti flóttamenn, þ.e. einstaklinga sem eru með svokallaða viðbótarvernd. Viðbótarvernd er í raun evrópskt fyrirbæri sem var einmitt kokkað upp til að fylla í þetta gat í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, sem er þegar fólk er að flýja almennt hættuástand eða stríð. Flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna — til þess að uppfylla skilyrði sem þar eru sett í skilgreiningunni á flóttamanni þarf einstaklingur í raun að vera ofsóttur, annaðhvort af hálfu stjórnvalda eða stjórnvöld eru ófær um að vernda hann fyrir ofsóknum á grundvelli ákveðinna þátta sem þar eru taldir upp. Fólk með viðbótarvernd er ekki flóttamenn í skilningi flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. En ég ætla svo sem ekki að vera með málalengingar um það.
Það sem mig langar til að nefna í þessari ræðu minni er hvað mér finnst að stjórnvöld ættu að gera frekar en það sem verið er að leggja til með frumvarpinu. Það er nefnilega rétt að meðferð mála, þar sem einstaklingur hefur t.d. fengið vernd í öðru landi — tökum bara fjölskylduna frá Grikklandi sem dæmi, sem er algengasta myndin, algengasti prófíllinn, sem við erum að horfa á, þ.e. fólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem hefur fengið vernd í Grikklandi en sér ekki fram á að geta búið við öryggi þar í landi vegna gríðarlega alvarlegs efnahagsástands og mikils fjölda flóttafólks þar. Í núgildandi lögum er sem sagt heimilt að vísa fólki aftur til baka til Grikklands ef það hefur fengið þar vernd. Hins vegar ber stjórnvöldum skylda til þess að taka málið til efnismeðferðar hér á landi, það þýðir að opna málið, opna umsóknina og skoða hana, ef viðkomandi hefur sérstök tengsl við landið eða ef sérstakar ástæður eru til þess að málið verði afgreitt hér á landi þrátt fyrir að viðkomandi hafi fengið vernd í Grikklandi. Þessar sérstöku ástæður hafa verið ágætlega útfærðar í framkvæmd þó að kærunefnd útlendingamála, með ákveðnum mannabreytingum þar, hafi á undanförnum árum sífellt þrengt þá túlkun. Sumir lögfræðingar eru jafnvel á því að stundum séu stjórnvöld aðeins á undan löggjafanum við að taka í gildi lagabreytingar sem eru fyrirhugaðar, að framkvæmdin sé stundum í samræmi við lög sem hafa ekki verið samþykkt. En það er önnur saga og lengri. En það sem ég tel að myndi bæta málsmeðferð í þessum málum væri ef stjórnvöld legðu ekki svona mikla áherslu á það að geta einhvern veginn og með einhverjum hætti vísað fólki úr landi. Það er erfitt fyrir einstakling sem vinnur hjá Útlendingastofnun og er að afgreiða mál, kannski með litla starfsreynslu og annað, að vera með mál einstaklings fyrir framan sig og þurfa að komast að þeirri niðurstöðu að hann eigi að fara úr landi. Þetta er erfitt, þetta er þungbær ákvörðun og það er miklu auðveldara að segja já. Þegar þú ert að horfa fram á það að þurfa að taka erfiða ákvörðun þá er auðvitað við því að búast að það taki lengri tíma og sé erfiðara. Við veigrum okkur við því. En hins vegar er það stefnan. Það er stefnan og ég skal færa fyrir því málefnaleg rök fyrir hvern þann sem efast um það eða finnst ég vera ómálefnaleg þegar ég segi það.
Að lokum, ég er fallin á tíma, langar mig til að vekja athygli á 47. gr. laga um útlendinga sem kveður á um að ákvörðun (Forseti hringir.) annarra ríkja, um að einstaklingur sé flóttamaður, skuli virt. Það þarf ekkert (Forseti hringir.) að fara í nýja málsmeðferð. Við þurfum ekki að hafa málsmeðferðina (Forseti hringir.) svona þunga í vöfum og það þarf ekkert að breyta (Forseti hringir.) lögum til að laga þetta, það þarf bara að fylgja þeim.
(Forseti (ÁsF): Forseta finnst leitt að þurfa að áminna þingmenn aftur og aftur um sömu reglur sem gilda hér í þessum þingsal.)