154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:52]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, beindi til mín spurningu í ræðu sinni og mér er ljúft og skylt að reyna að verða við henni. Ég tel vegna stríðsástands að þá eigi Ísland að taka á móti fólki sem er að flýja stríð. Við erum að gera það nú þegar. Einn stærsti hópur flóttamanna á undanförnum árum til Íslands kemur frá Úkraínu vegna innrásar Rússlands eða Pútíns í Úkraínu þar sem er brotið gróflega á fullveldi þess ríkis og vanvirt fullveldi landsins. Við veitum þeim svokallaða kollektífa vernd, við tökum sem sagt á móti fólki án þess að það fari í gegnum venjulega málsmeðferð eða umsóknarferli og það tel ég að hafi verið rétt þannig að ég tel að það eigi við. Ég veit að hugtakið flóttamaður er skilgreint þannig í sambandi við viðbótarvernd í lögum um útlendinga, þar segir, með leyfi forseta: „Þeir einstaklingar sem falla undir viðbótarvernd teljast einnig flóttamenn samkvæmt lögum þessum.“ Við erum þá komin með víðari skilgreiningu en í flóttamannasamningnum á grundvelli Evrópureglnanna sem þar eru. En það þýðir það ekki, nú eru stríð víðs vegar í heiminum, að við eigum að taka á móti öllum. Litla Ísland, einangruð eyja norður í Dumbshafi, einangraðasta ríki Evrópu, við berum ekki ábyrgð á hörmungum heimsins. Við gerum það ekki. Það er bara þannig. Við erum 400.000 manns hérna og okkur hefur tekist að byggja upp flott samfélag að mörgu leyti með góðum lífsgæðum og við getum ekki tekið á móti hörmungum heimsins til Íslands. Við eigum að gera skyldu okkar samkvæmt alþjóðasamningum.

Það er annað í þessu líka sem er mjög mikilvægt atriði. Það er svokölluð samábyrgð. Það er fjallað um samábyrgð í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og það er fjallað um samábyrgð í tilskipun Evrópusambandsins. Það á að dreifa byrðunum jafnt á öll ríki. Við erum að axla byrðar sem eru miklu, miklu þyngri hlutfallslega en á hinum Norðurlöndunum. Það er vert að hafa í huga í þessum málum.

Mig langar að spyrja: Hvar stendur hv. þingmaður? Vill hún opin landamæri í þessum málaflokki eða vill hún það ekki?