154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:54]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður viðheldur þeirri röngu mynd sem er í þessari umræðu og 2. umræðu um útlendingamál hér á þinginu að þetta snúist eitthvað um opin eða lokuð landamæri. Það hefur ekkert með það að gera, bara ekki neitt. (Gripið fram í.) Opin eða lokuð landamæri, það hefur ekkert með það að gera. Ástæðan fyrir því að ég spurði hv. þingmann hvort honum þætti að við ættum að taka á móti fólki sem er að flýja stríð er sú að í samtali við annan hv. þingmann áðan, í tengslum við réttindi barna á flótta, varð hv. þingmanni tíðrætt um að okkur beri ekki skylda til að veita börnum fjölskyldusameiningar, það sé ekki brot á barnasáttmálanum að veita ekki börnum fjölskyldusameiningu samstundis. Ég skildi hv. þingmann þannig, og óska hér með eftir því að hann leiðrétti mig ef ég fer rangt með, að honum finnist að við eigum að uppfylla okkar skyldur samkvæmt alþjóðasamningum. En okkur ber ekki skylda samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna til að veita fólki vernd sem er að flýja stríð. Og þá langar mig líka til þess einmitt að vekja athygli hv. þingmanns og fleiri á því að flóttafólk frá Úkraínu fær ekki stöðu flóttamanns. Það fær svokallað dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sem er ótrúlega áhugavert og að mínu mati kolröng aðferð. Mörg þeirra eru raunverulega flóttamenn samkvæmt flóttamannasamningnum og önnur eiga rétt á viðbótarvernd samkvæmt þeirri skilgreiningu.

Ég vil kannski ítreka spurningu mína til hv. þingmanns: Þar sem okkur ber ekki skylda samkvæmt þessum alþjóðasamningum til þess að veita fólki vernd sem kemur hingað til lands upp á eigin spýtur, þar eru mjög fáir sem ná því, eigum við samt ekki að veita þeim vernd? Þó að okkur ber ekki skylda til þess þá erum við sannarlega að gera það.

Mig langar síðan að taka undir með hv. þingmanni að byrðina eigi að jafna sem víðast. En þá ætla ég að bjóða hv. þingmanni að fletta upp hlutföllum flóttafólks (Forseti hringir.) í nærliggjandi ríkjum, í löndum sem eru ekki í Evrópu og spyrja hv. þingmann hvort honum (Forseti hringir.) finnist ekki að Evrópa eigi líka að taka á sig sambærilega byrði til þess að jafna þetta út.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn enn og aftur á ræðutímann.)