154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:56]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við tökum á móti flóttafólki á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Það er mjög gott að við séum að gera það, að við séum að styðja við bakið á úkraínsku þjóðinni. En það þýðir ekki — auðvitað þarf þetta fólk að fara til baka þegar stríðinu lýkur. Við getum ekki verið að taka hæfileikaríkasta fólkið úr þessum samfélögum, hvort sem það er Sýrland eða önnur ríki, og taka það til okkar því hvernig á þá að byggja upp þessi ríki aftur í framtíðinni? Það er líka spurning sem við þurfum að spyrja okkur. Ég veit að góðærið hérna og velmegun á Íslandi dregur að en það er líka þannig að við þurfum að passa okkur hvað við gerum. Það er annað í þessu líka varðandi önnur ríki, t.d. eins og Tyrkland, þeir eru með yfir 3,6 milljónir í sínum flóttamannabúðum frá Sýrlandi af því að það er nágrannaríki, það er næsta ríki. (Gripið fram í.) Já, nákvæmlega. Evrópusambandið borgar milljarða evra til að halda fólkinu þar, svo það komi ekki til Evrópu. Ég efast ekki um að ef það kæmu upp hörmungar í Færeyjum t.d., þá myndum við taka vel á móti Færeyingum. Ég efast ekki um það að ef það kæmu eldsumbrot t.d. á Íslandi og við þyrftum að flýja þessa fallegu eyju okkar þá myndu Norðmenn og Skandinavía taka á móti okkur í heild nánast, ég get nánast fullyrt það, vegna þess að við erum nágrannaríki og við erum frændþjóðir o.s.frv. Það að bera okkur saman við Tyrkland eða önnur ríki, t.d. eins og Pakistan með flóttafólk frá Afganistan, er bara ekki réttlátt. Við eigum að bera okkur saman við ríki sem eru í nágrenni við okkur. Við eigum að axla sömu byrðar og þau ríki. Það er verið að reyna að gera það hér en við göngum ekki nógu langt. Það er grundvallaratriði. Ég tel að við eigum að reyna að hafa þessi mál þannig að við þurfum ekki að hafa pólitískar deilur um þau í framtíðinni og ég er sannfærður um það að hv. þingmaður sé sammála mér hvað það varðar og við erum sammála um ótrúlega margt í þessum málaflokki.

Mig langar að spyrja: Er það ekki verðugt markmið að við afgreiðum þetta í sátt frá þinginu og við höfum reglur svo þetta verði ekki deilumál í samfélaginu, valdi ekki þessari pólaríseringu, (Forseti hringir.) sem ég tel reyndar að sé ekki mikil miðað við í kalda stríðinu t.d.? Ég vil líka segja (Forseti hringir.) að Evrópusambandið er að fara sömu leið og Meloni á Ítalíu og hún hefur verið talin vera langt til hægri. Það er stefna Evrópusambandsins í dag.