útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Við hv. þingmaður erum sannarlega sammála um margt en jafnvel það sem við erum ósammála um, sem sagt hvert vandamálið er, leysir þetta frumvarp ekki, ekkert af því. Þetta frumvarp leysir engin vandamál, bara nákvæmlega ekki nein. Nei, ég ætla að segja nei, það er ekki hægt að afgreiða þetta mál í sátt vegna þess að þetta er bara mjög heimskulegt mál. Það er alveg sama hvar maður stendur, hvort maður vill fleiri flóttamenn eða færri, þetta er algjörlega fráleitt mál. Það mun bara auka á streitu og slæma líðan fólks sem við erum búin að ákveða að fái að vera hérna með því að stytta dvalarleyfistímann, skerða heimildir til að sameinast börnunum sínum og annað. Þetta er bara ótrúlega kjánalegt. Það er ekkert gagnlegt við þessar breytingar. Þær eru skaðlegar, ekki bara fyrir fólkið sem situr undir þeim heldur samfélagið okkar fyrst og fremst. Þær eru skaðlegar, þetta er skaðlegt frumvarp, bara algerlega galið mál. Og það er ekki af því að það lokar einhverjum landamærum, það gerir það ekki neitt. Það leysir hvorki þann vanda sem við stöndum frammi fyrir né þann vanda sem sumir halda að við stöndum frammi fyrir eða eru ósammála mér um kannski hver vandinn er. Ég ætla að láta þetta nægja.