útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):
Forseti. Það vill nú svo til að þessari athugasemd minni er ekki beint að virðulegum forseta sem situr hér núna heldur þeim sem sat hér rétt áðan. Það er sannarlega þannig að einstaklingur sem stendur hér í pontu, þingmaður í pontu, er með orðið. Það er hins vegar ákveðin hefð fyrir því að fólk geti kallað einstök orð utan úr sal. Ég hef persónulega aldrei orðið vitni að því áður að forseti hér í forsetastól rétti út höndina og sussi á þingmann sem kallar fram tvö, þrjú orð. Ég hef ekki orðið vitni að því áður, hef ekki upplifað það, og gagnrýni þetta harðlega og velti fyrir mér hvort kyn þeirrar er hér stendur hafi eitthvað með þessa framkomu að gera.