154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Á meðan ég tek til pínulítilla varna gagnvart fyrrum forseta þar sem hann rétti líka út höndina og sussaði á mig þegar ég var að segja eitt og eitt orð — það er greinilega ekki kynbundið, kannski er það flokksbundið, hver veit — þá vil ég líka minna forseta á að það þarf ákveðna lagni við þessa blessuðu bjöllu hérna. Hún glymur ansi hátt og snjallt og er kannski síður ætluð til að drekkja orðum þingmanna en til að láta þá vita að tíminn sé búinn. Það hafa einmitt borist kvartanir um að þessi hái bjölluhljómur fari einstaklega illa í sjónvarpsútsendingunni, að það sé eiginlega vandamál fyrir sjónvarpsútsendinguna frekar en okkur þingmenn. Það má endilega bjalla svo sem eins hátt og forseti vill á okkur þingmenn en kannski af ákveðinni virðingu við áhorfendur þá mætti forseti, sem var hér áðan en ekki núna, temja sér aðeins mýkri vinnubrögð.